Innlent

Tveir greindust innan­lands og báðir utan sóttkvíar

Atli Ísleifsson skrifar
Rúmlega 6.500 manns hafa nú greinst með kórónuveiruna innanlands frá upphafi faraldursins í febrúar á síðasta ári.
Rúmlega 6.500 manns hafa nú greinst með kórónuveiruna innanlands frá upphafi faraldursins í febrúar á síðasta ári. Vísir/Vilhelm

Tveir greindust með kórónuveiruna innan­lands í gær. Báðir sem greindust voru utan sóttkvíar. Þetta eru fyrst smitin sem greinast hjá fólki utan sóttkvíar frá 12. maí. 

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni Covid.is.

52 eru nú í einangrun, en voru 58 í gær. 114 eru nú í sóttkví, en voru 120 í gær. 1101 eru nú í skimunarsóttkví. Þá eru fjórir nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, sami fjöldi og í gær.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 11,2, en var 12,0 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 2,5, en var 3,0 í gær.

73.205 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 82.853 til viðbótar.

6.551 hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins í febrúar á síðasta ári. Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru 29 látin.

Alls voru tekin 692 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá voru 964 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun og 506 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.

Fréttin verður uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×