Átök og eldræða í borgarstjórn: „Sjálfstæðisflokkurinn er kýli á samfélaginu“ Eiður Þór Árnason skrifar 11. maí 2021 23:32 Frá öðrum fundi borgarstjórnar Reykjavíkur. Vísir/Vilhelm Átök brutust út á fundi borgarstjórnar í kvöld þegar rætt var um nýbirtan ársreikning Reykjavíkurborgar. Mikil spenna var milli fulltrúa minnihluta og meirihluta þar sem þeir fyrrnefndu gagnrýndu harðlega rekstrarniðurstöðu borgarinnar.
Allt ætlaði þó um koll að keyra þegar Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata, gerði lítið úr athugasemdum Sjálfstæðismanna og beindi spjótum sínum rækilega að flokknum í ræðu sinni. Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata í Reykjavík.Aðsend „Ég vil leggja áherslu á og undirstrika að Sjálfstæðisflokknum er ekki treystandi fyrir styrkri fjármálastjórn, hvorki hér né annars staðar. Hans helsta áróðursmarkmið er að láta fólk trúa því að hann sé ofboðslega ábyrgur þegar kemur að fjármálum en hann er það ekki,“ sagði Dóra Björt í ræðupúlti borgarstjórnar. „Sjálfstæðisflokkurinn og hans stjórnun er ekki ábyrg, ekki heiðarleg og ekki góð. Það sem hefur komið fram í dag er að flokkurinn hefði frekar viljað skera niður en axla þá ábyrgð sem við ákváðum að gera í þessari efnahagskreppu. Jákvæð niðurstaða í Excel skiptir Sjálfstæðisflokkinn meira máli en líf fólks, atvinnustig í samfélaginu eða efnahagsástand samfélagsins, þá vitum við það.“ Þá sagði Dóra Björt óábyrgt og skaðlegt að gagnrýna innviðafjárfestingu og leggja til að borgin myndi standa með hendur í skauti í núverandi efnahagsástandi. „Það er í raun algjör vitleysa að Sjálfstæðisflokkurinn standi fyrir ábyrga efnahagsstjórn, hann stendur fyrir sérhagsmunagæslu, hann stendur fyrir spillingu og gæti ekki verið meira sama um velferð einstaklinga. Þetta fyrirlít ég,“ bætti hún við í eldræðu sinni við misgóðar undirtektir viðstaddra. „Hann stendur fyrir þröngsýni og gamaldags nálgun á efnahagsmál og þar sem hann er við völd veldur hann oft miklum skaða. Sjálfstæðisflokkurinn er í raun kýli á samfélaginu, hann er hreint og beint hættulegur samfélaginu.“ „Hann stendur fyrir það að gata kerfið okkar svo fjármunir og eignir almennings geti lekið í þeirra eigin vasa. Það er ekki ábyrg fjármálastjórn,“ sagði hún enn fremur. Horfa má á fundinn í spilaranum hér fyrir ofan. Ræða Dóru Bjartar hefst þegar fjórar klukkustundir eru liðnar af fundinum. Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins.Aðsend Sagði ræðuna vera drullukast Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins var fyrst til að svara ræðu Dóru Bjartar og kallaði efni hennar „skítkast dauðans.“ „Ekki það að ég sé að halda uppi einhverri vörn fyrir Sjálfstæðisflokkinn en við erum öll fólk hérna og þvílíkt drullukast á einn flokk,“ bætti hún við áður en hún líkti ummælum Dóru um Sjálfstæðisflokkinn í ræðustól og blaðagreinum við einelti. „Mér finnst þetta ekki boðlegt. Ef við endurspilum þetta lið fyrir lið og orð fyrir orð þá hljóta allir menn að sjá að þetta er ekki mannsæmandi, hvorki hér eða annars staðar.“ Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.Vísir/vilhelm Ætti að halda þessu fyrir sig Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, gagnrýndi Pawel Bartoszek, forseta borgarstjórnar, fyrir að leyfa Dóru Björt að fara út fyrir umræðuefni fundarins. „Og að vera með ásakanir og dylgjur sem í raun og veru fer þvert gegn siðareglum okkar og ræða ekki ársreikninginn. Ég vil bara minna á það að við eigum að ræða hérna ársreikninginn og ef það er ekki virt þá getum við bara farið að ræða einhver allt önnur mál hérna undir; umferðarmál, húsnæðismál eða hvað einhver sé vondur í salnum.“ Vigdís Hauksdóttir, oddviti Miðflokksins, sagði Dóru Björt ganga enn á ný fram með „dylgjur og deleríngu úr ræðupúlti borgarstjórnar og það beinist allt gegn einum flokki.“ „Ef hún hefur þessa persónulegu skoðun þá verður hún að hafa hana fyrir sig. Þetta er ekki boðlegt fyrir borgarstjórn Reykjavíkur. […] Þetta ber forseta að stoppa.“ Vigdís Hauksdóttir, oddviti Miðflokksins í Reykjavík.Vísir/Vilhelm Sýni hvað meirihlutanum líði illa Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sagði málflutning Dóru „vera fyrir neðan allar hellur.“ „Það er mér algjörlega ótrúlegt að borgarfulltrúi eða forseti borgarstjórnar skuli ekki hafa stoppað þennan orðaflaum sem kemur úr munni borgarfulltrúans.“ „Það er algjörlega ótækt að menn hagi sér svona,“ sagði Björn og beindi orðum sínum að Pawel Bartoszek, forseta borgarstjórnar. Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.Aðsend Eyþór Arnalds steig síðar aftur í ræðupúlt borgarstjórnar. Aftur var ræða Dóru til umræðu sem hann sagði „vera til skammar.“ „Ég hefði viljað að málflutningur meirihlutans hafi fjallað meira um ársreikninginn og minna um önnur mál. Mér finnst eftirtektarvert að sjá hvað þeir fulltrúar meirihlutans sem hafa hér talað eru með böggum hildar og greinilega líður illa með þennan ársreikning og þessa stöðu. Það er eina skýringin á því hvernig þeir hafa hegðað sér hérna í dag, það er ekkert annað. „Hér eigum við að tala faglega og yfirvegað um staðreyndir og tölur. Við höfum ákveðið að ræða bara einn hlut hér í dag, það er ársreikningurinn og þeir sem ekki treysta sér til þess eru greinilega að forðast að ræða það sem er til umræðu. Það dæmir sig sjálft, því meiri sem dónaskapurinn og dylgjurnar verða því meira er það staðfest að meirihlutanum líður illa með þessa stöðu,“ sagði Eyþór Arnalds á fundi borgarstjórnar í kvöld.
Reykjavík Borgarstjórn Stjórnsýsla Tengdar fréttir Rekstrarniðurstaðan neikvæð um nærri þrjá milljarða Rekstrarniðurstaða samstæðu A- og B-hluta Reykjavíkurborgar árið 2020 var neikvæð um tæpa 2,8 milljarða króna en áætlanir gerðu ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu upp á tæpa tólf milljarða króna. 29. apríl 2021 13:54 Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Sjá meira
Rekstrarniðurstaðan neikvæð um nærri þrjá milljarða Rekstrarniðurstaða samstæðu A- og B-hluta Reykjavíkurborgar árið 2020 var neikvæð um tæpa 2,8 milljarða króna en áætlanir gerðu ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu upp á tæpa tólf milljarða króna. 29. apríl 2021 13:54