Fjolla Shala til liðs við Fylki Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 11. maí 2021 21:45 Fjolla í leik með Blikum sumarið 2018. Vísir Fjolla Shala hefur samið við Fylki um að leika með liðinu næstu tvö árin hið minnsta. Frá þessu var greint á Facebook-síðu Fylkis fyrr í kvöld.
Hin 28 ára gamla Fjolla lék með Fylki frá 2009 til 2011 en þaðan lá leiðin til Breiðabliks. Þar hefur hún leikið við góðan orðstír en Fjolla var frá vegna meiðsla allt síðasta tímabil er Breiðablik varð Íslandsmeistari í knattspyrnu. „Fjolla, sem er 28 ára gömul, þekkir vel til í Árbænum og er mörgu Fylkisfólki kunn. Hún skottaðist yfir til okkar frá grönnum okkar í Leikni haustið 2008 aðeins 15 ára gömul og lék í kjölfarið með meistaraflokki félagsins þrjú tímabil í efstu deild, 2009-2011. Alls lék Fjolla 47 leiki í Íslandsmóti og bikarkeppni fyrir félagið áður en hún hélt til Breiðabliks þar sem hún hefur leikið síðastliðin 9 ár,“ segir í yfirlýsingu Fylkis. „Fjolla er reynslumikill leikmaður og bindum við miklar vonir við að hún eigi eftir að styrkja og reynast okkar unga og efnilega liði vel. Hún hefur leikið 172 meistaraflokksleiki, þar af 157 í efstu deild og bikar. Þá hefur Fjolla leikið 31 yngri landsleik fyrir Íslands hönd auk þess sem hún hefur leikið 5 leiki með A-landsliði Kosovo.“ Fylkir er sem stendur í neðsta sæti Pepsi Max deildar kvenna eftir 9-0 tap gegn Íslandsmeisturum Breiðabliks á Kópavogsvelli í fyrstu umferð. Þá var leik liðsins og nýliða Tindastóls frestað svo næsti leikur Árbæinga er gegn Val á Hlíðarenda. Fjolla Shala mætt aftur í Árbæinn! Fylkir og Breiðablik hafa komist að samkomulagi um félagaskipti Fjollu Shala til...Posted by Íþróttafélagið Fylkir on Tuesday, May 11, 2021
Fótbolti Íslenski boltinn Fylkir Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Úkraína - Ísland 2-0 | Krömdu aftur hjörtu Íslendinga Fótbolti Heimir með Íra í HM-umspil eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Heimir fékk tilboð: „Pabbi vill ekki vera þar sem stuðningsmenn vilja hann ekki“ Fótbolti Lárus gafst upp og hætti að horfa: „Þeir hentu þeim leik“ Fótbolti „Það verða breytingar“ Fótbolti Einkunnir Íslands: Sverrir bestur í grátlegu tapi Sport Samningi Caulkers við Stjörnuna rift Íslenski boltinn Óvænt lið Íslands: Hörður, Brynjólfur og Jón Dagur inn Fótbolti „Að fara frá heimahögunum og í borg óttans“ Íslenski boltinn Malinovskyi vonar að Albert eigi ekki sinn besta dag Fótbolti Fleiri fréttir Samningi Caulkers við Stjörnuna rift „Að fara frá heimahögunum og í borg óttans“ Rosenörn yfirgefur FH Montiel til KA Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta Sjá meira