Martröð Man. Utd: Tap gegn Liverpool gæti fært City titilinn Sindri Sverrisson skrifar 29. apríl 2021 08:01 Manchester City er þegar búið að landa deildabikarmeistaratitli og á góðri leið með að komast í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. EPA/YOAN VALAT Sjöundi Englandsmeistaratitillinn blasir við Manchester City og aðeins virðist spurning hvenær liðið landar titlinum. Það gæti orðið strax um helgina.
Manchester United mætir erkifjendum sínum í Liverpool á sunnudaginn. Ef að City vinnur Crystal Palace á laugardag, og United tapar svo gegn Liverpool, yrði titillinn í höfn hjá City. Rauði hluti Manchesterborgar þyrfti þá að hlusta á fagnaðarlæti bláa hlutans vegna fjórða Englandsmeistaratitilsins frá því að United fagnaði honum síðast, samhliða því að sýta tapið gegn Liverpool. Ef að City verður ekki Englandsmeistari um helgina gæti liðið landað titlinum laugardaginn 8. maí, á heimavelli gegn Chelsea. City á svo eftir leiki við Newcastle, Brighton og loks Everton. City er með 77 stig eftir 33 umferðir, tíu stigum á undan United sem er í 2. sæti. City getur því mest endað með 92 stig á tímabilinu og mun enda með færri stig en meistarar síðustu fjögurra tímabila. City setti met með því að ná 100 stigum fyrir þremur árum og náði 98 stigum þegar liðið vann 2019. Liverpool náði 99 stigum í fyrra og Chelsea 93 árið 2017. Með sjöunda Englandsmeistaratitli sínum verður City jafnt Aston Villa í 5.-6. sæti yfir flesta titla, fyrir ofan Chelsea og Sunderland sem unnið hafa sex. United á flesta Englandsmeistaratitla eða 20 en vann þann síðasta árið 2013.
Enski boltinn Mest lesið Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti KR - Njarðvík | Vinna KR-ingar þriðja leikinn í röð? Körfubolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Fleiri fréttir Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina Sjá meira