Bóluefni fyrir 193 þúsund fyrir júnílok Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 31. mars 2021 16:06 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir tölur gærdagsins styðja hertar aðgerðir sem þegar hafa tekið gildi innanlands og hertar aðgerðir á landamærum frá og með morgundeginum. Vísir/Vilhelm Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra gerir bólusetningar, nýjar reglur á landamærum og stöðu mála í kórónuveirufaraldrinum að umræðuefni í því sem mætti kalla páskapistli sínum á Facebook. Henni telst til að í lok júní verði komið hingað til lands bóluefni fyrir 240 þúsund manns.
Katrín segir bólusetningu við Covid-19 ýmist hafna eða lokið hjá rúmlega 49 þúsund manns. „Þetta er í samræmi við þær áætlanir sem stjórnvöld kynntu í upphafi árs og er ánægjulegt að þær hafa staðist þó að við hefðum öll kosið að afhending bóluefna gengi hraðar. Á næstu þremur mánuðum gera sömu áætlanir ráð fyrir að okkur berist bóluefni fyrir samtals rúmlega 193 þúsund einstaklinga. Gangi það eftir hefur Ísland, fyrir lok júní, fengið bóluefni fyrir samtals um 240.000 einstaklinga frá því að bólusetningar hófust í lok desember, en alls telur hópurinn sem ráðgert er að bólusetja um 280.000 manns.“ Auðvitað séu allar þessar áætlanir settar fram með öllum hefðbundnum fyrirvörum enda geti margt komið upp á í þessu viðkvæma ferli. Skimun fyrir börn byrjar á morgun Á morgun taka gildi breyttar og hertar reglur á landamærum. „Þá verður sú breyting að fólk sem hingað kemur til lands frá eldrauðum löndum þarf að dvelja fimm daga á farsóttarhúsi áður en það fer í seinni skimun. Á sama tíma verður tekin upp skimun fyrir börn – sem ekki hefur tíðkast hingað til. Þá verður tekin upp ein skimun fyrir alla farþega sem eru með bólusetningarvottorð og mótefnavottorð óháð því hvaðan þeir koma,“ segir Katrín. „Þessar breytingar koma ofan á það kerfi sem hér hefur verið við lýði frá 19. ágúst sem felur í sér tvöfalda skimun með fimm daga sóttkví á milli en raunar var bætt við þær kröfur þann 19. febrúar síðastliðinn með kröfu um neikvætt PCR-próf. Á morgun tekur líka gildi sú regla að allir sem hingað koma til lands þurfa að skrá brottfarardag.“ Í stuttu máli hafi verið beitt skilvirkum og hörðum aðgerðum á landamærum allt frá síðasta hausti. „Við gerum okkur grein fyrir því að með þeirri breytingu sem tekur gildi á morgun erum við enn að herða verulega á aðgerðum á landamærum sem eru vissulega íþyngjandi fyrir fólk sem þarf að fara yfir landamærin. Við biðjum þó alla um að sýna því skilning að það er okkar mat eftir að hafa ráðfært okkur við sóttvarnalækni og aðra sérfræðinga að þetta séu nauðsynlegar aðgerðir til halda faraldrinum í skefjum og verja þannig daglegt líf og heilsu landsmanna á meðan bólusetningum vindur fram.“ Full þörf á aðgerðum „Við vitum að ekki er hægt að tryggja að veiran berist ekki inn í landið en með öflugum aðgerðum á landamærunum drögum við úr líkunum á því að það gerist og aukum um leið líkurnar á því að ekki þurfi að grípa til harðari aðgerða innanlands.“ Átta greindust smitaðir innanlands í gær og var meirihluti, eða fimm, utan sóttkvíar. Katrín segir tölurnar sýna að full þörf sé á þeim aðgerðum sem stjórnvöld kynntu í síðustu viku og þeim breytingum sem taki gildi á landamærunum á morgun. „Við höfum náð ótrúlegum árangri með því að beita umfangsmikilli skimun, smitrakningu, sóttkví og einangrun. En þegar smit eru að greinast utan sóttkvíar þarf því miður að beita harðari aðgerðum. Kórónuveiran er slægur vágestur og breska afbrigðið er enn meira smitandi en fyrri afbrigði og meiri ógn fyrir börn og ungt fólk. Það skiptir máli nú sem aldrei fyrr að við gerum öll okkar besta til að kæfa niður veiruna og stöndum saman í baráttunni,“ segir Katrín. Baráttan hafi hingað til gengið ótrúlega vel og við Íslendingar notið hvað mests frelsis allra Evrópuþjóða í okkar daglega lífi. „Bólusetningin mun breyta miklu til góðs og henni vindur fram eins og hér var nefnt í upphafi. En núna skiptir miklu að við tökumst á við þetta eins og við höfum gert hingað til og höfum betur í þeirri baráttu,“ segir Katrín sem vonar að landsmenn njóti páskadaganna. Uppfært 19:38 Forsætisráðherra uppfærði Facebook-færslu sína eftir að frétt Vísis birtist. Þar sem hún talaði um skimun farþega með bólusetingarvottorð og mótefnavottorð stendur ekki lengur að en enn sem komið er séu aðeins þau sem hafa slík vottorð sem upprunnin eru innan EES-svæðisins undanskilin tvöfaldri skimun á íslenskum landamærum. Fréttinni hefur verið breytt í samræmi við það.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Baunað á Jónas Má þvert á flokka Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Erlent Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Erlent Fleiri fréttir Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Sjá meira