Rannsóknir hafa sýnt að mörgum finnst mjög óþægilegt að efla tengslanetið. Mörgum líður þá eins og þeir séu ekki heiðarlegir í samskiptum, enda sé markmiðið í raun tengslamyndun fyrir vinnuna eða starfsframann.
Rannsóknir hafa þó einnig sýnt að sá hópur fólks sem finnst þetta hvað mest óþægilegt, er sá hópur fólks sem hefur mestu þörfina á því að efla tengslanetið sitt. Í þágu síns sjálfs.
Því gott tengslanet getur aukið líkur á árangri í starfi, til dæmis í að afla tekna, nýrra viðskiptavina eða auka á þjónustu. Gott tengslanet getur hjálpað okkur í launasamningum eða að þróast áfram í starfi.
Þá getur gott tengslanet nýst okkur í atvinnuleit.
Gott tengslanet getur líka nýst okkur vel í framtíðarstörfum eða verkefnum.
Tengslamyndun er oft tengd við starfið okkar eða starfsframa. Gott tengslanet getur hins vegar líka nýst okkur vel í einkalífi, sem mögulega skýrir það út hvers vegna rannsóknir hafa sýnt að það að vera með gott tengslanet gerir okkur hugmyndaríkari því við fáum oftar innblástur frá öðrum og líðan okkar mælist að öllu jafna betur.
Hér eru nokkur góð ráð til að efla tengslanetið.
1. Okkar eigið viðhorf og framlag
Það fyrsta sem við þurfum að gera er að skoða okkar eigið viðhorf til verkefnisins. Þar skiptir mestu máli að líta á uppbyggingu tengslanetsins okkar sem jákvætt verkefni.
Því í raun erum við ekki að gera neitt annað en að GEFA tækifærum tækifæri!
Mestu máli skiptir að átta okkur á því strax, að við höfum sjálf margt fram að færa. Þetta er oft fyrsta hindrunin hjá fólki því mörg okkar erum gjörn á að hugsa: „Já en ég hef ekki neitt sérstakt, að minnsta kosti ekki í samanburði við hinn....“ En vittu til, það hafa allir eitthvað fram að færa.
Góð leið til að byrja er að bjóða oftar fram aðstoð og hjálpa öðrum. Því þegar að við gerum það, gerist tvennt: Við verðum meðvitaðri um að við höfum margt fram að færa og eflum tengslanetið með því að auka á jákvætt viðhorf annarra í okkar garð.
Þá er líka ágætt að muna að þegar að fólk biður okkur um aðstoð eða leitar ráða hjá okkur, erum við líka að efla tengslanetið.
Að efla tengslanetið með því að sýna stuðning, hjálpa öðrum eða tengja fólk saman, er ein besta leiðin til að efla tengslanetið. Og það góða við þessa leið, er að okkur sjálfum líður líka vel með okkar eigið framlag.
2. Spyrjum spurninga
Mörgum finnst óþægilegt að hefja ný kynni til að byggja upp tengslanetið og líður oft eins og þeir séu að „selja“ sjálfan sig í þágu vinnunnar
Þarna er um að gera að staldra aðeins við, því góð tengslamyndun snýst nákvæmlega ekkert um þetta. Miklu frekar snýst góð tengslamyndun um það að þú sýnir hinum aðilanum áhuga. Með því að sýna öðrum áhuga, eykst jákvætt viðmót í þinn garð og þannig skilar tengslamyndunin sér til þín.
Þegar að við hittum fólk sem við viljum kynnast betur, er því um að gera að spyrja spurninga sem snýr að þeim.
Einföld dæmi gætu til dæmis verið að spyrja um starf viðkomandi. „Hvernig kom það til að þú byrjaðir í þessari vinnu?“ Eða þegar verið er að ræða ákveðin mál að spyrja „Hvað finnst þér vera mesta áskorunin í þessu?“ Eða eitthvað í þessum dúr.
3. Að hlusta mjög vel
Það sem flestir flaska á í samskiptum er hlustun.
Öll viljum við þó láta hlusta á það sem við erum að segja. Þannig að þegar þú hittir einhvern sem þú vilt kynnast betur, leggðu þig þá fram við að hlusta 100% á það sem viðkomandi er að segja. Með því að hlusta vel, eykur þú á jákvæða tilfinningu viðkomandi gagnvart þér.
4. Að deila þekkingu eða sjónarmiðum
Rannsóknir hafa sýnt að góðar hugmyndir verða í fæstum tilfellum til vegna þess að einhver er svo rosalega klár. Nei, þær verða nefnilega oftar til vegna þess að fólk er duglegt að tala saman, deila þekkingu og skoðunum.
Þannig fáum við innblástur úr samskiptum við annað fólk, sérstaklega þegar við erum dugleg að tala við fólk með mismunandi bakgrunn, þekkingu eða þarfir.
Þegar/ef við finnum fyrir feimni við að segja hvað okkur finnst, er ágætt að minna sig á þetta. Því það sem þú segir, er í raun framlag inn í þann samskiptaheim sem gefur okkur öllum innblástur fyrir hugmyndir og lausnir.
5. Að fylgja nýjum kynnum eftir
En það er ekki nóg að kynnast nýju fólki. Oft þurfum við að hafa fyrir því að efla þau tengsl sem við vorum að opna á.
Í lokin er því vert að fara yfir nokkrar leiðir til að fylgja nýjum kynnum eftir og styðjast þá við ráðin sem við vorum að fara yfir hér að ofan.
A) Að nýta afrakstur góðrar hlustunar:
Við getum sent viðkomandi grein, podcöst eða link að einhverjum upplýsingum sem þú telur líklegt að viðkomandi kunni að meta miðað við samtalið sem þið áttuð.
B) Að gera öðrum greiða, að gagnast öðrum:
Ert þú milliliður? Getur þú tengt saman einhvern sem þú þekkir við þann sem þú varst að hefja kynni við þannig að úr verði tengsl á milli þeirra, sem báðir aðilar eru líklegir til að kunna að meta?
C) Að bjóða fram aðstoð:
Ertu í nýju starfi, að kynnast nýjum hópi eða að eignast nýjan viðskiptavin? Í þeirri stöðu er gott að efla tengslanetið innan hópsins með því að bjóða fram aðstoð eða þjónustu umfram það sem ætlast er til af þér.