Viðskipti innlent

Creditin­fo sagt verð­metið á allt að þrjá­tíu milljarða

Eiður Þór Árnason skrifar
Afkomendur Ingvars Kamprad, stofnanda IKEA, eru einn stærsti hluthafinn í LLCP. Ingvar lést árið 2018.
Afkomendur Ingvars Kamprad, stofnanda IKEA, eru einn stærsti hluthafinn í LLCP. Ingvar lést árið 2018. EPA/Anders Wiklund

Kaupverð bandaríska framtakssjóðsins Levine Leichtman Capital Partners (LLCP) á meirihluta hlutafjár Creditinfo Group samsvarar því að íslenska félagið sé verðmetið á tuttugu til þrjátíu milljarða króna, samkvæmt heimildum Markaðarins, viðskiptakálfs Fréttablaðsins. Er endanleg fjárhæð sögð velta á ákveðnum fjárhagslegum markmiðum.

Greint var frá því í gær að LLCP hafi keypt meirihluta hlutafjár í Creditinfo Group, móðurfélagi Creditinfo á Íslandi, en kaupverð fékkst ekki uppgefið. Þá kom fram að Reynir Grétarsson, stofnandi fyrirtækisins, myndi halda sæti sínu í stjórn félagsins og verða annar stærsti hluthafi þess en hlutur hans minnkar úr 70 prósentum í 35 prósent við söluna.

Samkvæmt heimildum Markaðsins má ætla að virði hlutarins sem Reynir selji sé metið á allt að tíu milljarða króna.

Reynir segir í samtali við Markaðinn að einn stærsti hluthafinn í LLCP sé sænska Kamprad-fjölskyldan, afkomendur Ingvars Kamprad, stofnanda IKEA. Þá er framtakssjóðurinn sagður vera með um 11,7 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði um 1.500 milljarða króna, í stýringu og hafa fjárfest í yfir 90 fyrirtækjum.

Að sögn Reynis er sá möguleiki fyrir hendi að höfuðstöðvar Creditinfo verði fluttar úr landi samhliða minnkandi vægi starfseminnar á Íslandi og breyttu eignarhaldi.

Upplýsinga- og þjónustufyrirtækið Creditinfo var stofnað á Íslandi 1997 og sérhæfir sig í miðlun fjárhags- og viðskiptaupplýsinga, fjölmiðlavöktun og ráðgjöf á áhættumati og áhættustýringu fyrirtækja. Starfa rúmlega fjögur hundruð manns hjá fyrirtækinu á yfir þrjátíu starfsstöðvum víða um heim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×