Vilja frelsa Dillonshús úr „Árbæjar-Gúlaginu“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 5. mars 2021 09:03 Árni Snævarr blaðamaður, Sif Sigmardóttir rithöfundur, Guðjón Friðriksson sagnfræðingur, Gísli Marteinn Baldursson fjölmiðlamaður og Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks rita pistil um málið. Árni Snævarr, blaðamaður, Gísli Marteinn Baldursson, fjölmiðlamaður, Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur, Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, og Sif Sigmarsdóttir, rithöfundur og pistlahöfundur, segja Árbæjarsafn tímaskekkju nú þegar þétting byggðar sé „alfa og ómega“ í bæjarpólitíkinni í Reykjavík.
Þau vilja að Dillonshús verði flutt af safninu og á sinn upprunalega stað í miðbæ Reykjavíkur og segja að flutningur hússins yrði vonandi „táknrænt upphaf þess að bundinn yrði endir á útlegð flestra húsa í Árbæjar-Gúlaginu og þau flutt á sinn upphaflega stað eða að minnsta kosti í túnið heima.“ Svo komast fimmmenningarnir að orði í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag undir yfirskriftinni „Musteri ástarinnar þarf að komast aftur heim“. Í greininni er saga hússins rakin en það stóð upphaflega á horni Túngötu og Suðurgötu þar sem nú eru bílastæði. Húsið hafi verið reist af ást en svo verið fórnað á „altari blikkbeljunnar“. Breski aðalsmaðurinn Arthur Edmund Denis Dillon lét byggja húsið um miðja 19. öld fyrir ástkonu sína, Sire Ottesen, og dóttur þeirra, Henriettu Dillon. Í greininni er saga Sire einnig rakin og segir meðal annars um hana: „Sire lifði lífi sínu frjáls og óþvinguð af illu umtali og stífum gildum samfélagsins, tók sér ástmenn eftir þörfum og eignaðist tvö börn í lausaleik en hvorugt þeirra komst til manns. Fágætt hefur verið í Reykjavík í upphaf i 19. aldar að kona léti sér fátt um finnast þrátt fyrir slúður, skömmun og hveljusog siðapostula. „Hún var frjálsleg eins og drottning, samboðin hverjum konungbornum tignarmanni,“ skrifaði Tómas skáld Guðmundsson um Sire.“ Sire og Arthur fengu ekki að eigast en Sire og Henrietta komu sér fyrir í Dillonshúsi þar sem Sire var meðal annars með veitinga- og gistirekstur. Hún lést árið 1878. Frá Árbæjarsafni þar sem Dillonshús hefur verið í sextíu ár.Vísir/Friðrik Þór „Útlegðardómur réttlættur“ með því að húsið var vettvangur „síðari tíma fólskuverks“ Árið 1960 var tekin ákvörðun um að flytja Dillonshús í Árbæjarsafn. Átta árum fyrr hafði mikill harmleikur orðið í húsinu þegar andlega veikur lyfsali myrti eiginkonu sína og þrjú börn með eitri áður en hann svipti sig lífi. Segja fimmmenningarnir í grein sinni að „útlegðardómur“ hússins á Árbæjarsafni hafi verið „réttlættur með því að húsið væri vettvangur síðari tíma fólskuverks sem geðsjúkur maður beitti ástvini sína.“ Fimmmenningarnir segja Dillonshús hafi verið í fyrirtaksvarðveislu á safninu þar sem því hafi verið sýndur sómi. Nú sé hins vegar rétt að þeirri geymslu ljúki og húsið fái að komast á sinn upphaflega stað sem allra fyrst: „Bílastæðin tólf eru í kallfæri og í samkeppni við rúmgóðan og vistlegan bílastæðakjallara Ráðhússins. Dillonshús hefur verið sönn höfuðprýði Árbæjarsafns, en afar ósennilegt er að Sire hafi nokkurn tíma komið þangað. Safnið er tímaskekkja nú þegar þétting byggðar er alfa og ómega bæjarstjórnarpólitíkur Reykjavíkur og yrði flutningur þess tákn um nýja tíma. Vonandi yrði flutningurinn aðeins táknrænt upphaf þess að bundinn yrði endir á útlegð sem flestra húsa í Árbæjar-Gúlaginu og þau flutt á sinn upphaflega stað eða að minnsta kosti í túnið heima. Seinni tíma harmsaga Dillons-húss er ekki rök á móti því að þetta musteri ástarinnar snúi aftur heim. Þvert á móti. Ástæðulaust er að sópa undir teppið þeim hluta sögunnar sem okkur líkar ekki við í dag. Ekki síður ber að heiðra minningu fórnarlamba voðaverka apótekarans sem gat ekki unað konu sinni og börnum lífs þegar hann sjálfur sá ekki framtíð fyrir sjálfan sig fastur í viðjum geðveikinnar. Dillons-hús var reist rétt þar sem Ingólfur og Hallveig byggðu eitt af fyrstu húsum sínum og er þess minnst á glæsilegu safni. Á þessum litla reit eru rætur Reykjavíkur og örskammt þaðan er Víkurgarður. Þar á húsið heima til minningar um merka sögu ásta og örlaga og hina frjálshuga Sire Bergmann Ottesen,“ segir í lok greinarinnar sem lesa má í heild sinni í Fréttablaðinu í dag.
Skipulag Reykjavík Húsavernd Mest lesið Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Erlent Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Fleiri fréttir Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Sjá meira