Fangelsisdómur og málsmeðferð Navalní, auk því fjöldahandtaka mótmælenda, hefur leitt til ákalla varðandi refsiaðgerðir í garð Rússlands.
Sjá einnig: Saksóknarar segja fangelsiskröfu sanngjarna
Málið snýr að kæru gegn Navalní fyrir ummæli hans um eldri mann sem barðist í seinni heimsstyrjöldinni. Sá hafði tekið þátt í kynningarmyndbandi um stjórnarskrárbreytingar Vladimírs Pútíns, forseta, sem gerðu honum kleift að sitja í embætti forseta til 2036.
Navalní kallaði uppgjafahermanninn og aðra sem tóku þátt í myndbandinu skammarlega, samviskulausa og svikara. Fyrir það var hann ákærður en réttarhöldunum gegn honum hefur ítrekað verið frestað vegna þess að Navalní hefur haldið til í Þýskalandi eftir að eitrað var fyrir honum með taugaeitri í Rússlandi í fyrra.
Sjá einnig: Útsendarar FSB sagðir hafa eitrað fyrir Navalní
Hámarksrefsing við broti sem þessu er tvö ár í fangelsi. Lögmenn Navalnís segja þó samkvæmt Reuters að ekki sé hægt að dæma hann í fangelsi, því hið meinta brot hafi átt sér stað áður en meiðyrðalögum var breytt og refsingar þyngdar.
Samkvæmt frétt Moscow Times hafa bandamenn Navalnís ákveðið að halda ekki frekari mótmæli fyrr en í vor. Það er af ótta við frekari fjöldahandtökur og ofbeldi í garð mótmælenda og sömuleiðis þess að þeir vilji einbeita sér við undirbúning fyrir þingkosningar sem halda á í september. Fleiri en tíu þúsund manns hafa verið handteknir vegna mótmæla undanfarnar vikur.
Sjá einnig: Rússneskur ritstjóri í fangelsi fyrir tíst
Miðillinn hefur eftir Leonid Volkov, einum nánasta samstarfsmanni Navalnís, að það sé það sem hann vilji.
Sagðist líða eins og hann væri frjásl
Í skilaboðum sem birt voru á Instagramsíðu Navalnís í gær voru stuðningsmenn hans hvattir til að berjast fyrir frjálsu Rússlandi og ráðamenn þar í landi sakaðir um að vera þjófar. Hann sagði að þeir myndu einungis halda völdum sínum ef Rússar væru hræddir við þá.
Navalní sakaði einnig Pútín og öryggissveitir Rússlands um að bera ábyrgð á eitrun hans.
Í skilaboðunum sagði Navalní einnig að honum liði eins og frjálsum manni, því hann væri sannfærður um að hann væri að gera það sem væri rétt og vegna þess stuðnings sem hann hafi notið.