„Erum ekki í titilbaráttunni“ Anton Ingi Leifsson skrifar 3. febrúar 2021 22:35 Robertson var hundsvekktur í leikslok. Clive Brunskill/Getty Images Andy Robertson, vinstri bakvörður Liverpool, segir að eins og sakir standa þá séu ensku meistararnir ekki í titilbaráttunni. Þetta sagði hann eftir 1-0 tap Liverpool gegn Brighton í kvöld en þetta var annað tap Liverpool í röð á heimavelli. „
Brighton var betra liðið. Þetta voru mikil vonbrigði yfir allan völlinn. Þú verður að gefa þeim hrós fyrir að spila vel. Þeir sköpuðu færi, pressuðu okkur og gerðu allt sem þeir vildu gera,“ sagði Robertson í samtali við fjölmiðla í leikslok. „Við gerðum ekkert það sem við ætluðum að gera. Eftir langt tímabil án þess að tapa höfum við tapað tveimur í röð. Þegar þú mætir ekki þá nærðu ekki í nein úrslit. Við búum okkur undir hvern einasta leik á sinn hátt en þetta er ekki að smella.“ Defeat at Anfield. #LIVBHA— Liverpool FC (@LFC) February 3, 2021 Það er skammt stórra högga á milli. Liverpool fær Manchester City í heimsókn á sunnudaginn en ensku meistararnir eru nú sjö stigum á eftir City, sem á einnig leik til góða. „Við þurfum að finna leiðir til þess að ná í úrslit og sérstaklega á heimavelli. Þú getur gert allt á æfingum en allir leikir gegn Manchester City eru stórir. Eins og sakir standa þá erum við ekki í titilbaráttunni.“ „Við erum sjö stigum á eftir þeim og þeir eiga leik inni. Ég er viss um að þeir myndu segja það sama ef þeir væru tíu stigum á eftir okkur. Við þurfum að finna Liverpool liðið sem allir þekkja. Við erum enn gott lið, það breyttist ekki bara á einni nóttu,“ bætti Skotinn við.
Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Sjá meira