Innlent

Ætla að auka virkni og vellíðan langtímaatvinnulausra

Elín Margrét Böðvarsdóttir og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa
Atvinnuleysi er einna mest í Reykjanesbæ.
Atvinnuleysi er einna mest í Reykjanesbæ. Vísir/Vilhelm

Reykjanesbær ætlar á þessu ári að bjóða langtímaatvinnulausum úrræði sem felst í að auka vellíðan og virkni. Verkefnastjóri fjölmenningarmála segir mikilvægt að ná til þessa hóps.

Mesta atvinnuleysi á landinu á þessu og síðasta ári hefur verið á Suðurnesjum þar sem tæplega einn af hverjum fjórum hefur verið atvinnulaus síðustu mánuði. Stór hluti þeirra er af erlendum uppruna. Það jókst um 0,5 prósent á milli nóvember og desembert.

Langtímaatvinnulausum hefur fjölgað samhliða þessari þróun og hluti þeirra hefur síður nýtt sér þau úrræði sem hafa verið í boði.

Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir, er verkefnastjóri fjölmenningarmála hjá Reykjanesbæ.Vísir

„Það er fólk sem hefur verið lengi utan vinnumarkaðar og mögulega þeir sem að tala litla íslensku og hafa verið ekki mjög virkir þátttakendur í okkar samfélagi. Við ætlum að fara af stað með verkefni sem að snýr að vellíðan og virkni þess hóps, að þjálfa þau í íslensku og styðja þau í félagslegri virkni,“ segir Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir, verkefnastjóri fjölmenningarmála í Reykjanesbæ.

Hún segir mikilvægt að aðstoða þennan hóp.

„Við sjáum það alltaf betur og betur að það að upplifa sem að þú tilheyrir ekki samfélaginu það hefur gríðarlega mikil áhrif á vellíðan og samfélagsleg virkni, hún skilar sér svo margfalt miklu fleiri staði,“ segir Hilma.

Hún segir að bærinn sé að klára samninga við miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum og í framhaldinu verði tekið á móti fyrsta hópnum í febrúar. Áætlað er að sextíu til áttatíu manns fari í gegnum úrræðið á þessu ári sem hefur fengið vinnuheitið Til vellíðunar og virkni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×