Viðskipti innlent

Ingi­björg nýr for­stöðu­maður hjá Sam­tökum at­vinnu­lífsins

Eiður Þór Árnason skrifar
Ingibjörg hefur starfað hjá SA frá árinu 2019 og er nú stjórnarformaður Hörpu.
Ingibjörg hefur starfað hjá SA frá árinu 2019 og er nú stjórnarformaður Hörpu. Aðsend

Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður samkeppnishæfnissviðs Samtaka atvinnulífsins (SA). Hún tekur við starfinu af Davíð Þorlákssyni en Ingibjörg starfaði áður sem verkefnastjóri hjá SA.

Fram kemur í tilkynningu frá SA að á samkeppnishæfnissviði sé haldið utan um verkefni sem snúa að samkeppnishæfni og starfsumhverfi íslensks atvinnulífs. Undir sviðið heyri meðal annars menntamál, umhverfismál og nýsköpun. Þá haldi sviðið utan um umsagnir um lög og reglugerðir til Alþingis. 

Ingibjörg hefur starfað hjá SA frá árinu 2019 en áður starfaði hún sem sviðsstjóri reksturs, mennta- og mannauðsmála Samtaka iðnaðarins. Hún var framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar, stýrði undirbúningi og opnun Menningarhússins Hofs og var framkvæmdastjóri þess frá opnun til ársloka 2014, segir í tilkynningu. Ingibjörg er einnig sögð hafa víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og hefur hún setið í ýmsum stjórnum og nefndum á vegum SA. Þar að auki er hún stjórnarformaður Hörpu.

Ingibjörg er með MSc-gráðu í stjórnun og stefnumótun, BSc-gráðu í viðskiptafræði auk þess sem hún er með vottun í verkefnastjórnun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×