Éljagangur fyrir norðan og óvissa fyrir sunnan Samúel Karl Ólason skrifar 24. janúar 2021 07:51 Spálíkön Veðurstofunnar eru ósammála um það hvort von sé á snjókomu á suðvesturhluta landsins eða ekki. Vísir/Vilhelm Áfram verður éljagangur um landið norðanvert, þó dragi úr vindi í dag, sem á að vera norðaustan 8 til 15 m/s. Bjart verður með köflum á sunnanverðu landinu og frost víða 0 til 6 stig, samkvæmt spá Veðurstofu Íslands.
Vegir eru víða ófærir á norðanverðu landinu og er víða blint ennþá. Vegagerðin gerir ráð fyrir að það muni taka töluverðan tíma að opna vegina í dag þegar dregur úr vindi. Í spá Veðurstofunnar segir að áfram verði líkur á slæmum akstursskilyrðum á norðanverðu landinu. Á morgun verði áfram norðlæg átt, 5 til 13 m/s og áfram él norðan- og austanlands. Talsverð óvissa sé í spánum fyrir suðvestanvert landið vegna lægðardrags sem myndist suðvestur af landinu í nótt. Líkön séu ósammála um hvort það nái inn á landi með tilheyrandi ofankomu eða hvort það haldi sig fjarri með þurru veðri. Annað kvöld er svo búist við því að vind hvessi af austri vestantil á landinu. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á mánudag: Norðlæg átt 5-13 m/s og él um landið norðan- og austanvert. Austlægari og líkur á snjókomu í suðvesturfjórðungi landins. Frost 1 til 10 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan. Vaxandi austlæg átt vestantil um kvöldið. Á þriðjudag: Austan og norðaustan 13-20, en hægari vindur um landið austanvert. Él í flestum landshlutum, og dregur úr frosti sunnanlands. Á miðvikudag: Hvöss austlæg átt og slydda eða snjókoma með köflum, en mun hægari vindur og þurrt um landið austanvert. Frost 0 til 7 stig, en frostlaust við suðurströndina. Á fimmtudag: Austan og suðaustanátt og skúrir eða él sunnan-og vestanlands, annars þurrt. Hiti 0 til 4 stig, en vægt frost fyrir norðan. Á föstudag og laugardag: Austlæg eða breytileg átt og skýjað með köflum, en dálítil él við suðurströndina. Frost 0 til 7 stig.
Veður Mest lesið Létu Staðarskála ekki duga og tóku yfir pitsustað Innlent Rosalegur hiti á Akureyri seint um kvöld í nóvember Veður Sóttvarnaraðgerðir „aldeilis ekki“ meiri en í Svíþjóð Innlent Elduðu úti, óðu yfir vaktstjórann og fylltu matsalinn Innlent Sagði að Þórdís myndi undirrita vegna tengsla Bjarna við Hval Innlent Hafi ekki sakað blaðamenn um hleranir: „Ég sagði það ekki og hef hvergi sagt það“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Bíll festist eftir aurskriðu við Dýrafjarðargöng Innlent „Ásakanir Jóns Gunnarssonar eru rangar“ Innlent Hátt í 400 kynlífsmyndböndum lekið í mögulegu samsæri Erlent Fleiri fréttir Sóttvarnaraðgerðir „aldeilis ekki“ meiri en í Svíþjóð Bíll festist eftir aurskriðu við Dýrafjarðargöng Létu Staðarskála ekki duga og tóku yfir pitsustað Hrafnar opna lokaðan póstkassa eins og ekkert sé Fyrrverandi félagsmálaráðherra eigi eftir að svara í máli Yazans Hafi ekki sakað blaðamenn um hleranir: „Ég sagði það ekki og hef hvergi sagt það“ „Gæsahúð, án gríns“ Sagði að Þórdís myndi undirrita vegna tengsla Bjarna við Hval Leynilegar upptökur og hrafnar sem tæta í sig reikninga fólks Í gæsluvarðhald vegna alvarlegra ofbeldisbrota í Hafnarfirði Bauð leyniupptökur af spillingu í nafni ísraelsks njósnafyrirtækis Bein útsending: Tekist á um samgöngur í Norðvesturkjördæmi Hafa tilkynnt E. coli veikindin til Sjóvá Ók á sjö kindur og drap þær Ekki púað á Snorra „Ásakanir Svandísar í minn garð eru lygi frá rótum“ „Ásakanir Jóns Gunnarssonar eru rangar“ Elduðu úti, óðu yfir vaktstjórann og fylltu matsalinn Nauðsynlegt að sameinast um aðgerðir í jafnréttismálum Tálbeita á Edition og vegklæðning flettist af í Öxnadal Bein útsending: Heimsþing kvenleiðtoga Settur forstjóri skipaður forstjóri Sautján sóttu um embætti skrifstofustjóra fjármála Pallborðið: Hvaða lausnir bjóða flokkarnir? Fimm prósent segja innflytjendamálin mikilvægust Verðlaunuð fyrir að berjast gegn slúðri Tveir af fimm telja hvalveiðar veikja stöðu Íslands í alþjóðlegum viðskiptum Ósammála því að skoðanakannanir séu ekki nákvæmar Óvenju margar bilanir í götulýsingu í Kópavogbæ Tálbeitan var með einkabílstjóra og gisti á Edition Sjá meira