Hér er samantekt með sex atriðum úr ýmsum alþjóðlegum könnunum sem gerðar voru undir árslok árið 2020.
1. Heilsa og öryggi starfólks í fyrirrúmi
Árið 2021 er líklegt að fólk muni gera meiri kröfur en áður um að vinnustaðir setji öryggið á oddinn. Sérstaklega er horft til þess tíma þegar fleiri fara að mæta á vinnustaði á ný.
Vinnustaðir munu að sama skapi leggja meiri áherslu en áður á andlega heilsu starfsfólks, ekki aðeins líkamlega. Þessu tengt muni vinnustaðir fara að bjóða meira upp á ráðgjöf og fleira til að tryggja og efla góða heilsu og líðan starfsfólks.
2. Áfram áhersla á fjölbreytileika
Margir stærri vinnustaðir hafa mótað sér stefnu um aukinn fjölbreytileika en því er spáð að áherslan á fjölbreytileikann muni enn aukast árið 2021. Ekki síst í Bandaríkjunum þar sem vinnustaðir draga lærdóm af George Floyd-mótmælunum í fyrra.
3. Sveigjanlegur vinnutími
Þessa dagana er nokkur umræða um styttingu vinnuvikunnar á Íslandi en almennt er því spáð að kröfur um aukinn sveigjanleika muni einkenna árið 2021.
Þessi áhersla tengist fjarvinnu sérstaklega þar sem alþjóðlegar kannanir sýna að áhugi flestra virðist vera að nýtt fyrirkomulag verði einhvers konar „blanda“ af því að mæta á vinnustaðinn eða vinna að heiman.
Þetta er í takt við þær niðurstöður sem kannanir Gallup sýna og gerðar voru fyrir Atvinnulífið 2020. Í þeim sýna niðurstöður að flestir sem starfað hafa í fjarvinnu árið 2020, hafa áhuga á að halda því áfram tvo til þrjá daga í viku.
4. Hraði stafrænnar þróunar eykst
Stafræn þróun heldur áfram að vera áberandi í atvinnulífinu en á mun meiri hraða en síðustu ár. Hraðari þróun er bein afleiðing af heimsfaraldrinum og þeim áhrifum sem Covid 19 hefur haft á atvinnulífið um allan heim.
5. Meiri stuðningur við starfsfólk frekar en endurnýjun
Í stað uppsagna og endurnýjunar starfsfólks er gert ráð fyrir að vinnustaðir muni í meira mæli en áður leggja áherslu á stuðning í formi kennslu og þróunar en áður.
Þetta er í takt við það sem viðmælendur Atvinnulífsins hafa sagt á liðnum mánuðum því breytingar í kjölfar fjórðu iðnbyltingarinnar eru að kalla á að starfsfólk þarf að læra nýja tækni, verkferlar munu breytast og fleira.
6. Breytt umhverfi rekstrar
Þá er því spáð að vinnustaðir muni víða þurfa að bregðast við nýju umhverfi rekstrar, t.d. nýjum reglugerðum sem settar verði. Þá verði gripið til ýmissa breytinga, ekki síst til að létta á álagi stoðdeilda vinnustaða eins og starfsmannahaldi, bókhaldi og fleira.