Innlent

Tíu greindust innanlands í gær

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá bólusetningu heilbrigðisstarfsmanna í liðinni viku.
Frá bólusetningu heilbrigðisstarfsmanna í liðinni viku. Vísir/Vilhelm

Alls greindust tíu með kórónuveiruna innanlands í gær. Sjö þeirra voru í sóttkví. Þá greindust þrettán manns á landamærunum. Þrír þeirra reyndust með virkt smit, hjá hinum er beðið niðurstöðu mótefnamælingar.

Samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is eru nú 101 einstaklingur í einangrun hér á landi með Covid-19. 131 er í sóttkví og 1441 í skimunarsóttkví. 22 eru á sjúkrahúsi en enginn á gjörgæslu.

Fjögur þeirra sem greindust í gær greindust við einkennasýnatöku og sex við sóttkvíar- og handahófsskimun.

Alls voru tekin 523 einkennasýni í gær og 1022 sýni við landamæraskimun.

Nýgengi innanlandssmita er 21,3 og nýgengi landamærasmita 16,6.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×