Áskorendamótið í Katrínarborg slegið af í bili Jakob Bjarnar skrifar 26. mars 2020 09:53 Grischuk og Nepo olnbogast við upphaf sinnar skákar. Mótinu hefur verið frestað og verið að koma keppendum heim.
Hið æsispennandi og sögulega Áskorendamót í Úralfjöllum, þar sem átta fremstu skákmenn heims hafa barist um það hver fær að skora á heimsmeistarann Magnús Carlsen, hefur verið slegið af. Þetta er tilkynnt í yfirlýsingu sem forseti FIDE, Arkady Dvorkovich, undirritar. Mótshaldið hefur verið umdeilt vegna stöðunnar sem komin er upp vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Hafa nokkrir keppenda talið vert að því yrði að aflýsa svo sem hinn rússneski Alexander Grischuk. Hann hefur siglt lygnan sjó þannig að ekki er hægt að væna hann um að vilja hætta vegna slaks gengis. Efstir eftir sjö umferðir eru hins vegar þeir Vachier-Lagrave og Ian Nepomniachtchi. Í áðurnefndri yfirlýsingu Arkady Dvorkovich segir reyndar að mótinu hafi verið frestað. Og boðað að því verði fram haldið seinna, nánari dagsetningar verða kynntar seinna. Nefnt er að rússnesk yfirvöld hafi gefið það út að flug frá landinu yrði í skötulíki og því sé ekki hægt að ábyrgjast það að keppendur komist heim. Vísir hefur fylgst grannt með mótinu, fékk Hrafn Jökulsson sérstaklega til að fjalla um það. Hrafn er nú í þessum orðum töluðum að vinna að úttekt um mótið og fara nánar yfir stöðu mála.
Skák Rússland Tengdar fréttir Feigðarflan FIDE? Teflt eins og enginn sé morgundagurinn í Rússlandi Andrúmsloftið í Katrínarborg, þar sem Áskorendamótið stendur yfir, er orðið lævi blandið. 25. mars 2020 08:07 Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira
Feigðarflan FIDE? Teflt eins og enginn sé morgundagurinn í Rússlandi Andrúmsloftið í Katrínarborg, þar sem Áskorendamótið stendur yfir, er orðið lævi blandið. 25. mars 2020 08:07