Atvinnulíf

Fyrir og eftir kórónuveiruna: Sjö atriði sem gætu breyst varanlega

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Það verður eflaust margt sem breytist varanlega með kórónuveirunni.
Það verður eflaust margt sem breytist varanlega með kórónuveirunni. Vísir/Getty

Eflaust munum við seinna tala um „fyrir og eftir kórónuveiruna“ enda svo margt sem er líklegt til að breytast varanlega í kjölfar heimsfaraldursins sem nú kollríður öllu. Margt verður leyst með þróun snertilausra tækni en margir velta líka fyrir sér hvað í okkar eigin hegðun eða samskiptum muni breytast og verða aldrei eins og áður var? 

Hér eru sjö dæmi um hluti sem gætu breyst í vinnuumhverfinu.

1. Handabandið

Að takast í hendur við ókunnuga þegar við heilsumst er siður sem margir spá að leggist niður að mestu í kjölfar kórónuveirunnar. Fólk mun hreinlega þróa nýjar hefðir. 

Þaðan af síður er talið líklegt að fólk muni heilsa ókunnugum með kossi.

2. Fundarmenningin breytist

Margir spá því að fjarvinna muni aukast verulega og það til framtíðar. Þessi þróun þýðir varanleg breyting á fundarmenningu vinnustaða. Fjarfundir eru komnir til að vera og eins aukin rafræn samskipti samstarfsmanna á milli.

3. Hópeflisviðburðir og starfsmannafagnaðir

Að forðast fjöldaforföll er eitthvað sem vinnustaðir eru að kynnast í fyrsta sinn. Alls staðar er verið að aðskilja starfsfólk til að koma í veg fyrir að of margir smitist í einu. 

Í þessum efnum heyrast spámenn segja að fyrirtæki muni setja sér nýjar stefnur um hópasamkomur starfsmanna. Þetta geti þýtt breytingar á viðburðum eins og hópefli deilda eða fjölmennum starfsmannahátíðum.

4. Atvinnuviðtöl

Í stað þess að hitta marga umsækjendur sem sækja um starf er því spáð að mannauðstjórar fari í auknum mæli að nýta sér sérhæfð tæknifyrirtæki sem byggja á rafrænum viðtölum og fundarbókunum og voru upphaflega ætluð til að spara stjórnendum tíma. 

Í framtíðinni verði sá háttur á að aðeins einstaklingar í lokaúrtaki umsækjenda muni hitta stjórnendur því það verði liður í því að forðast óþarfa traffík ókunnugra inn á vinnustaði.

5. Ráðstefnur, vörusýningar og tengslanetsmyndun

Ýmsir vilja meina að stórar ráðstefnur og vörusýningar muni heyra sögunni til. Sérstaklega eigi þetta við um mjög fjölsótta viðburði, til dæmis árlega tæknisýningu sem haldin er í Las Vegas þar sem gestir koma að alls staðar af úr heiminum.

Breyting á viðburðum sem þessum mun þá samhliða þýða að tengslanetsmyndun mun færast meira yfir á rafrænt form.

6. Við hættum að mæta slöpp í vinnuna

Íslendingar þekkja þetta vel: Við mætum slöpp (veik!) til vinnu og sjáum þegar á líður daginn hvort við hristum ekki slappleikann af okkur. Eftir kórónuveiruna mun fólk líta á smithættu öðruvísi en áður.

7. Endurmenntun starfsmanna

Að sækja sér nýja þekking á fjölsóttum námskeiðum, málþingum, vinnustofum eða öðru er sagt að muni færast meira yfir á rafrænt form. Þetta gæti hljómað eins og einhvers konar niðurskurður en fari svo að þetta verði þróunin, er líklegt að hún þýði einnig að á alþjóðavísu verði auðveldara að sækja sér ýmsa þekkingu sem hefur verið of dýrt eða flókið að sækja sér hingað til.

Samhliða þessu mun tengslanetsmyndun breytast og hætta að verða jafn algeng auglitis til auglitis.

Stuðst var meðal annars við samantekt Forbes við vinnslu greinarinnar. 

Fréttin hefur verið uppfærð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×