Fullkominn ostabakki fyrir hátíðarnar Ásbjörn Ólafsson ehf 17. desember 2020 09:01 Maria Gomez matarbloggari gefur hér hugmynd að girnilegum ostabakka sem gaman er að bera fram við gott tilefni. Die Käsemacher er austurrískt fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í handgerðum sælkeravörum og ostum úr hráefnum í hæsta gæðaflokki. Nýlega komu á markaðinn nokkrar bragðgóðar vörur frá fyrirtækinu. Um er að ræða ólífur, smápaprikur og smágrasker en allar tegundirnar eru eru fylltar með ferskosti. Einnig er í sömu línu smápapriku-chutney. Ein þeirra sem hefur prófað vörurnar er matarbloggarinn og fagurkerinn María Gomez á paz.is. “Um hátíðirnar vill fólk gera vel við sig í mat og drykk. Þó það tilheyri jólum og áramótum að hafa ákveðnar hefðir er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt. Til að mynda elska ég hefðbundna ostabakka en inn á milli er alltaf gaman að breyta til og þar koma vörurnar frá Die Käsemacher sterkar inn. Maria Gomezmælir með vörunum frá Die Käsemacher.Gabríela Gomez Ég hef m.a. útbúið tapas-ostabakka sem minnir mig á spænsku ræturnar. Ég held að margir séu fastir í því að ostabakkar þurfi alltaf að vera eins en það er svo fjarri lagi. Það má útbúa fagran ostabakka með lítillri fyrirhöfn á stuttum tíma. Vörurnar frá Die Käsemacher eru líka tilvaldar í matargerð eða bakstur – til dæmis má setja ólífurnar í brauð og það smellpassar að gera góðan fiskrétt með smápaprikunum. Chutneyið er svo tilvalið sem meðlæti með kjöti og fiski eða hreinlega með ostunum” segir María. Hún gefur hér hugmynd að girnilegum ostabakka sem gaman er að bera fram við gott tilefni, en Maríu finnst ómissandi að blanda saman söltu og sætu á sinn bakka. Á bakkann: 1 krukka fylltar smápaprikur frá Die Käsemacher (fæst í Fjarðarkaup 1 krukka fylltar Ólífur frá Die Käsemacher 1 krukka fyllt smágrasker frá Die Käsemacher 1 krukka smápapriku-chutney frá Die Käsemacher Pistasíuhnetur og saltar eða kryddaðar möndlur Saltar eða kryddaðar möndlur Súkkulaðirúsínur Sætmeti, t.d. franskar vöfflur eða litlar brownies Góðar pylsur, t.d. salamipylsa og hráskinka Snittubrauð, gott að grilla á grillpönnu sem dæmi Ostakex eða kexstangir að eigin vali 3-4 tegundir af ostum að eigin vali, t.d. Brie, hvítlauksrjómaostur og tveir sterkari ostar 2 perur, 4 plómur, blóðappelsína og ferskar döðlur Aðferð: Skerið ávextina niður í þunnar sneiðar. Einnig er fallegt að skreyta líka með helium óskornum ávöxtum. Setjið ostana á bakka ásamt brauði og kexi. Raðið svo hnetum, rúsínum og ávöxtum um allan bakkann Setjið ólífur, smágrasker, paprikur og chutney í skálar og setjið á bakkann. María mælir með að gera ostabakkann aðeins áður en á að bera hann fram svo ostarnir séu orðnir mjúkir og búnir að taka sig. Vörurnar frá Die Käsemacher fást í Krónunni, Hagkaup, Fjarðarkaupum, Melabúðinni ásamt minni verslunum. Matur Jól Hús og heimili Mest lesið Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Bíó og sjónvarp Verður að fara inn í nýjan áratug með stæl Lífið Tóti fékk bílinn lánaðan frá Líf Magneudóttur Lífið Kattavinafélagið minnist dýravinarins Davíðs Lífið Sviðshöfundar blótuðu þorrann í góubyrjun Lífið Ástin það besta í heiminum Tónlist Slakur með 62 milljón króna hálsmen Tíska og hönnun „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Lífið samstarf Fleiri fréttir Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira
Vörurnar frá Die Käsemacher fást í Krónunni, Hagkaup, Fjarðarkaupum, Melabúðinni ásamt minni verslunum.
Matur Jól Hús og heimili Mest lesið Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Bíó og sjónvarp Verður að fara inn í nýjan áratug með stæl Lífið Tóti fékk bílinn lánaðan frá Líf Magneudóttur Lífið Kattavinafélagið minnist dýravinarins Davíðs Lífið Sviðshöfundar blótuðu þorrann í góubyrjun Lífið Ástin það besta í heiminum Tónlist Slakur með 62 milljón króna hálsmen Tíska og hönnun „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Lífið samstarf Fleiri fréttir Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira