Innlent

Milt í veðri og hlýjast sunnan heiða

Sylvía Hall skrifar
Nokkuð milt veður verður næstu daga.
Nokkuð milt veður verður næstu daga. Vísir/vilhelm

Nokkuð mildu veðri er spáð á landinu í dag og er hiti á bilinu 3 til 9 stig. Þó má búast við auknu afrennsli á Suðausturlandi og Austfjörðum þar sem talsverðri rigningu er spáð, með tilheyrandi vatnavöxtum. Fólk er því beðið um að huga að niðurföllum til þess að forðast vatnstjón.

Þetta kemur fram í athugasemdum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Þar segir einnig að búast megi við norðaustan hvassviðri eða stormi suðaustanlands í kvöld og á morgun og geta vindhviður farið yfir 35 metra á sekúndu. Gætu því skapast varhugaverðar aðstæður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.

Dálítil væta verður einnig í öðrum landshlutum en hlýjast verður sunnan heiða. Svipað veður verður á morgun en þá dregur aðeins úr úrkomu austantil.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:

Norðaustan 13-18 m/s, en 18-23 við SA-ströndina. Rigning á austanverðu landinu og slydda með norðurströndinni, en annars þurrt að kalla. Hiti 1 til 7 stig, mildast syðst.

Á miðvikudag og fimmtudag:

Norðaustanstrekkingur og dálítil snjókoma eða slydda norðanlands, rigning austast og þurrt sunnan heiða. Hiti 0 til 6 stig, svalast í innsveitum nyrðra.

Á föstudag:

Áframhaldandi norðaustanátt og slydda eða snjókoma með köflum, en þurrt að kalla á Suður- og Vesturlandi. Heldur kólnandi veður.

Á laugardag:

Útlit fyrir norðan- og norðaustanáttir með snjókomu eða éljum, en bjartviðri sunnan heiða. Hiti kringum frostmark.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×