Snjalltæki sem léttir þér lífið Eldhústöfrar 2. október 2020 12:36 Berglind Ósk Haraldsdóttir og Rebekka Ómarsdóttir reka Eldhústöfra ehf og flytja inn töfratækið Thermomix. Vilhelm „
Thermomix er þýsk gæðahönnun sem kom fyrst fram á sjónarsviðið 1971 og þá til að saxa, hita og mauka barnamat, allt í einu og sama tækinu. Í dag er Thermomix komin á stafrænt form og sameinar tuttugu hefðbundin heimilistæki í einu tæki. Í rauninni er Thermomix eina heimilistækið sem þarf að eiga í eldhúsinu, fyrir utan kannski bakaraofn og pönnu,“ segir Berglind Ósk Haraldsdóttir, önnur eiganda Eldhústöfra ehf. sem flytja inn þessa snilldargræju sem er nú loks fáanleg á Íslandi. Thermomix leysir tuttugu hefðbundin heimilistæki af í eldhúsinu. Thermomix er blandari, matvinnsluvél, vigt, hrærivél, pottur, töfrasproti, þeytari, hnoðari, gufusuðutæki, eggjasuðutæki, sósu- og súpupottur, sous-vide græja og hægeldunarpottur svo fátt eitt sé nefnt! „Fólk áttar sig ekki á hvað þetta tæki getur gert nema sjá það,“ segir Berglind. „Við kynnum tækið í heimakynningum og eldum þá kvöldmatinn með fólki en erum einnig með sýningareldhús í Síðumúla 29. Þar er hægt að skoða tækið og fá örkynningu hjá okkur mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga milli klukkan 11 og 17 eða á öðrum tímum eftir samkomulagi. Þetta er bara snjalltæki eins og síminn og mjög aðgengilegt og einfalt í notkun,“ segir hún. „Borðplássið sem tækið tekur nemur stærð A4 blaðs og einn og sami hnífurinn vinnur alla vinnuna. Þá er tækið einnig auðvelt í þrifum og m.a. mega blöndunarskálin og hnífurinn fara í uppþvottavél. Það er ótrúlega gaman að nota Thermomix og fólk verður alveg húkkt á þessu, bæði þeir sem kunna mikið fyrir sér í eldhúsinu og þeir sem eru ekki mikið fyrir að elda. Thermomix tekur lítið borðpláss og er auðvelt og þægilegt í þrifum. „Í gegnum skjáinn er aðgangur að yfir 60.000 uppskriftum og það er hægt að fá ýtarlegar leiðbeiningar við eldamennskuna og mann langar alltaf til að prófa eitthvað nýtt,“ segir Berglind og bendir á að íslenska kokkalandsliðið notaði Thermomix í síðustu keppnisferð sinni á Ólympíuleikum matreiðslumanna þar sem liðið náði sínum besta árangri til þessa, 3. sæti. „Möguleikar vélarinnar eru nánast óþrjótandi og við viljum að fólk læri að nýta þá til fulls og bjóðum þess vegna upp á persónulega þjónustu og námskeið,“ segir Berglind. Baksturinn getur ekki klikkað í Thermomix. Það er sem dæmi sérlega gaman að hræra deig í vélinni og nefnir Berglind sérstaklega súkkulaðikökudeig því vélin bræðir saman súkkulaði og smjör við rétt hitastig. Það er líka gaman að vinna brauðdeig því vélin virkjar gerið við rétt hitastig og ekkert klikkar. „Svo er þetta auðvitað geggjaður blandari og hægt að gera frábæran ís og þeytinga. Þá er gufueldun vanmetin eldunaraðferð en með henni haldast öll næringarefni í matnum og það er ekkert mál að gufuelda með Thermomix. Það er einnig hægt að gerja í vélinni og til dæmis búa til eigin jógúrt og ekki má gleyma að nefna grjónagrautinn sem eldar sig sjálfur,“ segir Berglind og ljóst að möguleikarnir eru nánast óþrjótandi. Yfir 60.000 spennnandi uppskriftir er að finna í tækinu og ýtarlegar leiðbeiningar. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni og á facebooksíðunni
Matur Heilsa Mest lesið Samkeppnin í New York minnti á X-Factor keppni Menning Hrekkjavökubúningar sem er best að forðast Menning Fréttatía vikunnar: Ríkislögreglustjóri, fellibylur og rasisti Lífið Láta forræðishyggju hinna fullorðnu ekki fipa sig Lífið Telur Sweeney hafa verið blekkta í kjólinn Tíska og hönnun Stjörnurnar skinu skært á sögulegum sjónvarpsverðlaunum Lífið Atli Steinn fann ástina á ný Lífið Nýr skemmti- og spjallþáttur á Sýn Lífið Ískyggilega líkur ofurfyrirsætu: „Ég er með píku“ Lífið „Síðasta flugtak“ Play í Gamla bíói Lífið Fleiri fréttir Vetrartískan er mætt í Boozt með kósýheit Nýir réttir Serrano aðgengilegir í LifeTrack appinu Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu „Við eigum meira blóð en blóðbankinn!“ Flytja alla Springsteen slagarana í Hörpu Frábær árangur í meðferðarstarfi Kalklitir og Slippfélagið mála framtíðina saman Hárolía, vinur eða óvinur hársins? Dineout gjafabréf er jólagjöfin í ár Hjálpa öðrum að eignast lítil kraftaverk Þarf alltaf að vera vín? Trúði varla eigin augum þegar hún sá fyrir og eftir myndirnar Úrval Útsýn hefur svarað kalli um björgunarfargjöld Þessi litla breyting breytti í raun öllu! Eldhúspartý KVIK er á laugardaginn Hug-A-Lums þyngdarbangsar sem allir elska The Ultimate Eagles halda tónleika í Hörpu Sjá meira