Leiðtogi repúblikana segir að valdaskiptin fari fram „skipulega“ Kjartan Kjartansson skrifar 24. september 2020 16:14 McConnell vinnur nú að því að staðfesta hvern þann sem Trump forseti ákveður að tilnefna sem hæstaréttardómara fyrir kjördag. Ef fram fer sem horfir gætu úrslit forsetakosninganna endað á borði hæstaréttar sem væri þá með afgerandi meirihluta dómara sem repúblikanar hafa skipað, þar af þrír af níu af Trump sjálfum. AP/J. Scott Applewhite
Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikanaflokksins í öldungadeild Bandaríkjaþings, fullyrðir að valdaskipti eftir kosningar í nóvember fari fram á „skipulegan“ hátt þrátt fyrir að Donald Trump forseti hafi sagt að hann gæti ekki lofað að þau færu friðsamlega fram í gær. Fleiri repúblikanar hafa andmælt forsetanum um það í dag. Ummæli Trump þegar hann var spurður hvort að hann skuldbindi sig til friðsamra valdaskipta eftir kosningar, óháð úrslitunum, í gær eru sögð einsdæmi fyrir sitjandi forseta Bandaríkjanna. „Við sjáum hvað gerist,“ svaraði Trump sem hefur ítrekað haldið því fram án haldbærra sannana að stórfelld kosningasvik verði framin með póstatkvæðum sem mörg ríki bjóða fleiri kjósendum upp á nú til að draga úr smithættu í kórónuveirufaraldrinum. McConnell reyndi að taka af allan vafa um að möguleg valdaskipti eftir kosningar fari fram á friðsaman hátt í tísti í dag. „Sigurvegari kosninganna 3. nóvember verður settur í embætti 20. janúar. Það verða skipuleg valdaskipti eins og verið hefur á fjögurra ára fresti frá 1792,“ tísti McConnell. The winner of the November 3rd election will be inaugurated on January 20th. There will be an orderly transition just as there has been every four years since 1792.— Leader McConnell (@senatemajldr) September 24, 2020 AP-fréttastofan segir að McConnell hafi þó ekki viljað svara frekari spurningum um hvort að hann myndi krefjast þess við Trump að hann stigi til hliðar ef hann tapaði kosningunum í dag. Hæstiréttur gæti úrskurðað um siguvegarann Í svipaðan streng tók Lindsey Graham, formaður dómsmálanefndar öldungadeildarinnar og náinn bandamaður Trump, í viðtali við Fox-sjónvarpsstöðina í morgun. „Ef repúblikanar tapa munum við una úrslitunum. Ef hæstiréttur dæmir Joe Biden í vil, mun ég una þeirri niðurstöðu,“ sagði Graham og vísaði til þess ef úrslit kosninganna kæmu til kasta hæstaréttar eins og Trump fullyrti í gær að hann taldi að gerðist. Graham ítrekaði að hæstirétturinn gæti á endanum skorið úr um hver væri raunverulegur sigurvegari kosninganna ef úrslitunum væri skotið til dómstóla eins og miklar líkur eru taldar á að gerist. Repúblikanar róa nú að því öllum árum að staðfesta nýjan hæstaréttardómara til að fylla sæti Ruth Bader Ginsburg, sem lést á föstudag, fyrir kjördag. Dómarar sem repúblikanar hafa tilnefnt væru þá í öruggum meirihluta í réttinum. Trump hefur talað um að það sé mikilvægt að staðfesta dómara fyrir kosningar ef úrslit þeirra lenda á borði hæstaréttar. Liz Cheney, fulltrúadeildarþingmaður repúblikana frá Wyoming og einn leiðtoga flokksins á þingi, tísti um að friðsöm valdaskipti væru fest í sessi í stjórnarskránni og væri grundvöllur þess að lýðveldið lifði áfram. „Bandarískir leiðtogar sverja eið að stjórnarskránni. Við munum uppfylla þann eið,“ tísti Cheney. Telur að þjóðin leyfi Trump ekki að komast upp með að hafna úrslitunum Joe Biden, frambjóðandi demókrata, brást stuttlega við ummælum Trump í gærkvöldi. Sagði þau ekki koma honum á óvart og að hann vissi ekki hvað hann ætti um þau að segja. Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar þingsins, sagði það ekki koma á óvart að Trump vildi ekki ábyrgjast að hann virti niðurstöður kosninganna enda hefði hann sýnt stjórnsýslu og vísindum fyrirlitningu. Það væri þó dapurlegt og spurði Pelosi sig hvað stofnendum Bandaríkjanna hefði þótt um það. „Það væri ekki gott fyrir landið, fyrir kosningarnar okkar að forsetinn hunsaði þær,“ sagði Pelosi í dag og bað jafnframt Trump um að róa sig. Hún hefði þó trú á að bandaríska þjóðin leyfði Trump ekki að komast upp með að hafna úrslitum kosninganna. Speaker Pelosi says Pres. Trump declining to commit to peaceful transfer of power if he loses is no surprise because he has been contemptible of science and governance, but I have confidence in the American people, and Trump won t get away with it. https://t.co/mRWa6yO6vC pic.twitter.com/3zkXmXo7QI— ABC News (@ABC) September 24, 2020 Trump hefur um margra mánaða skeið hamast gegn því að ríki bjóði kjósendum upp á möguleikann að kjósa með póstatkvæðum í auknum mæli vegna faraldursins. Hann hefur haldið því fram án sannana að póstatkvæðum fylgi stórfelld kosningasvik sem muni kosta hann sigurinn. Skoðanakannanir hafa sýnt Biden með forskot á Trump allt frá því áður en Biden bauð sig fram. AP-fréttastofan segir ólíklegt að flumbrugangur í þeim níu ríkjum auk Washington-borgar sem bjóða öllum kjósendum upp á að greiða atkvæði með pósti hefði áhrif á úrslit forsetakosninganna. Fimm ríki voru fyrir með kerfi sem gerði öllum kjósendum að greiða atkvæði með pósti. Af hinum fjórum er aðeins líklegt að mjótt verði á muninum á milli Trump og Biden í Nevada. Ólíklegt er að atkvæði þar réðu úrslitum um endanlegan sigurvegara kosninganna.
Forsetakosningar í Bandaríkjunum Donald Trump Bandaríkin Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fleiri fréttir Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Sjá meira