Spáð talsverðri snjókomu með tilheyrandi samgöngutruflunum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 23. september 2020 06:46 Það verður frekar kalt á landinu í dag og næstu daga. Hitaspákortið er fyrir kl. 12 á hádegi í dag. Veðurstofa Íslands
Í dag verður norðlæg átt, 8 til 15 metrar á sekúndu, en hægari vindur um austanvert landið. Spáð er dálítilli vætu suðaustantil framan af degi og éljum fyrir norðan en bjart með köflum suðvestantil, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Hitinn verður 1 til 7 stig, mildast syðst. Seint í kvöld og nótt gengur síðan úrkomubakki inn á norðanvert landið: „Hann liggur í svölu norðanlofti, og mætti því ef til vill ætla að úrkoman félli öll sem snjór. Sjórinn er hins vegar enn tiltölulega hlýr á þessum tíma árs, svo úrkoman verður líklega slydda eða rigning víðast hvar við ströndina. Þegar komið er upp fyrir sjávarmál má hins vegar búast við talsverðri snjókomu með tilheyrandi samgöngutruflunum,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Norðan 10 til 15 metrar á sekúndu á morgun og skúrir eða él norðanlands en yfirleitt léttskýjað sunnan heiða. Síðdegis lægir svo víða og léttir til á norðvestanverðu landinu. Veðurhorfur á landinu: Norðlæg átt 8-15 m/s, en hægari um landið austanvert. Dálítil væta suðaustantil, og él fyrir norðan, en bjart með köflum suðvestanlands. Hiti 0 til 7 stig, mildast syðst. Rigning eða slydda, og sums staðar snjókoma norðantil seint í kvöld og nótt. Norðan 10-15 og skúrir eða él norðanlands á morgun, en yfirleitt léttskýjað sunnan heiða. Lægir víða síðdegis, og léttir til um landið norðvestanvert. Á fimmtudag: Norðan 8-15 m/s og skúrir eða él N-lands, en yfirleitt léttskýjað sunnan heiða. Lægir víða síðdegis, og léttir til um landið NV-vert. Hiti 0 til 7 stig yfir daginn, mildast syðst. Á föstudag: Hæg breytileg átt og víða bjartviðri. Hiti 2 til 7 stig, en um og undir frostmarki fyrir norðan. Vaxandi suðaustanátt og þykknar upp S- og V-lands seinnipartinn. Á laugardag: Suðaustan 10-18 og rigning, en þurrt að kalla NA-til. Hiti 4 til 9 stig. Á sunnudag: Minnkandi suðlæg átt og stöku skúrir, en rigning með köflum A-lands. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Fleiri fréttir Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Sjá meira