Eiður: Endum í deildinni þar sem við eigum skilið að vera Andri Már Eggertsson skrifar 21. september 2020 22:08 Eiður Smári á hliðarlínunni hjá FH fyrr í sumar. vísir/hulda
FH vann stórsigur á Fylki 4-1. Það var markalaust þegar liðin fóru inn í klefa eftir 45 mínútur en seinni hálfleikur FH var frábær sem skilaði þeim fjórum mörkum. „Við hefðum auðveldlega getað verið yfir í fyrri hálfleik fengum færi til að skora eitt eða tvö mörk og var spilið einnig gott. Við skorum fyrsta markið úr hornspyrnu eftir að við tókum við liðinu og síðan var heildar frammistaða liðsins nokkuð góð,” Sagði Eiður Smári. Björn Daníel Sverrisson var allt í öllu í liði FH í dag og skoraði hann tvö fyrstu mörk leiksins, Eiður er oftast ánægður með hans framlag en þegar hann skilar tveimur mörkum þá slakar það á taugum þjálfarateymisins. Það var markasúpa á 10 mínútna kafla í leiknum þar sem fjögur mörk litu dagsins ljós. „Það koma mörk með stuttu millibili og er óhætt að segja að með þriðja markinu er sigurinn í höfn en við komum þeim inn í leikinn með að fá þetta mark á okkur en það er jákvætt að við svöruðum strax aftur með marki.” Það er orðið ljóst að barráttan um Íslandsmeistaratitilinn er á milli Vals og FH, næsti leikur FH er á móti Val í Kaplakrika. „Ég hef alltaf sagt það að við endum í deildinni þar sem við eigum skilið, við tökum þennan sigur með okkur og byrjum að undirbúa okkur fyrir Valsleikinn á morgunn,” sagði Eiður Smári og bætti hann við að hann var ánægður með orkuna í liðinu og öll þau færi sem liðið skapaði sér á móti sterku liði Fylkis.
Pepsi Max-deild karla FH Mest lesið Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 26-24 | Svekkjandi tap í síðasta leik fyrir HM Handbolti Missti öll tíu Ólympíuverðlaun sín í eldunum Sport Frábært mark Trents, fyrsta mark Chiesa og nýtt Liverpool met hjá sextán ára strák Enski boltinn Þórir hefur ekki áhuga Handbolti Freyr sagði já við Brann Fótbolti „Ætla að halda áfram að pumpa væntingarnar“ Handbolti Frækinn sigur Plymouth en þægilegt hjá Chelsea Enski boltinn Áreittar af hópi manna eftir leikinn í Jeddah Fótbolti David Moyes aftur orðinn knattspyrnustjóri Everton Enski boltinn Þjálfari Eriku Nóttar meyr eftir að hann sendi hana af stað í ævintýraferð Sport Fleiri fréttir Daninn og Svíinn á skotskónum í sigri Vals Stórsigur hjá KR-ingum Ungir strákar í HK halda styrktarleik fyrir veikan vin sinn Alex Þór aftur í Stjörnuna Yfirgefur æskufélagið og semur við Þrótt „Hann er mjög eftirminnilegur og mér þykir vænt um hann“ „Himinlifandi“ eftir að hafa landað fyrirliða Fylkis KA fær lykilmann úr Eyjum Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Brazell ráðinn til Vals Gísli Gottskálk eftirsóttur í Póllandi Berglind Björg í raðir Breiðabliks Fullt af leikjum fyrir páska og langt hlé hjá konunum „Ég trúi því að frábært geti alltaf orðið ennþá betra“ Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Yfirlögfræðingur KSÍ verður framkvæmdastjóri Víkings KA-fólk fær sérútgáfu af bókinni Íslensk knattspyrna í ár Mikil sorg hjá Fram-fjölskyldunni Nauðsynlegt og löngu tímabært Stefán Þór Þórðarson í þjálfarastarf hjá Skagamönnum Fyrirliði Selfoss til liðs við Þróttara Vinna að lagningu gervigrass hafin í Vesturbæ „Hef mínar pælingar sem mér finnst gaman að taka áfram“ Blikar kveðja Damir og óska honum góðs gengis í Brúnei Mist Funa komin heim Víkingar seldu Bjarka Björn til Eyja Mætti syni sínum Sjá meira