Covid-aðgerðir innanlands mildari hér en víða Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. september 2020 15:46 Már Guðmundsson, fyrrverandi Seðlabankastjóri, var í starfshópnum. Vísir/Vilhelm
Sóttvarnaraðgerðir innanlands í kórónuveirufaraldrinum hafa verið í mildari kantinum sé miðað við erlendis. Þjóðarbúið hafði um 11-13 milljarða í tekjur af ferðamönnum á meðan slakað var á aðgerðum við landamærum í júní fram í ágúst. Þá núllaði aukin einkaneysla innanlands eftir samkomubann út minni neyslu meðan á banninu stóð. Þetta er á meðal niðurstaðna starfshóps fjármála- og efnahagsráðherra um efnahagsleg áhrif valkosta í sóttvarnamálum. Þar kemur einnig fram að gagnlegt væri að útskýra markmið sóttvarnaaðgerða betur og auka fyrirsjáanleika um þær eftir því sem við verður komið. Árangursríkar sóttvarnir feli í sér skammtímafórn fyrir langtímaávinning. Starfshópinn skipa Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, Tómas Brynjólfsson, skrifstofustjóri skrifstofu efnahagsmála í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Ásdís Kristjánsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Greint er frá niðurstöðum starfshópsins á vef Stjórnarráðsins. Ásdís Kristjánsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, var í starfshópnum.Vísir/Vilhelm Í skýrslunni kemur fram að mat á efnahagslegum áhrifum sóttvarna sé óvenju flókið og erfitt að leggja þá mælistiku á einstakar aðgerðir. Augljóst sé hins vegar að sóttvarnir geti bæði gengið of langt og of skammt. Sóttvarnaaðgerðir innanlands hafi lengst af verið mildar í alþjóðlegum samanburði og árangur þeirra góður. Einna mikilvægast sé að missa ekki tökin á faraldrinum og lenda í sambærilegu ástandi og skapaðist í mars og apríl. 11-13 milljarðar af útfluttri ferðaþjónustu Efnahagsleg áhrif heimsfaraldursins eru gríðarleg. Á Íslandi er mestur samdráttur þessa árs í ferðaþjónustu en útlit er fyrir að tekjur greinarinnar dragist saman um 60% fyrstu níu mánuði ársins miðað við sama tíma í fyrra. Samkvæmt skýrslunni skar Ísland sig ekki úr hvað varðar samdrátt í komu ferðamanna í sumar. Samdrátturinn var svipaður á Íslandi og í mörgum öðrum löndum þar sem ferðaþjónusta er mikilvæg, svo sem Spáni og Grikklandi. Kórónuveirufaraldurinn hefur sett mark sitt á Ísland sem önnur lönd.Landspítalinn/Þorkell Talið er að tekjur þjóðarbúsins af útfluttri ferðaþjónustu á tímabili slakari landamæraaðgerða í sumar hafi numið 11-13 milljörðum. Starfshópurinn setur í skýrslunni fram einfalda sviðsmynd þar sem reynt er að meta ytri mörk efnahagslegra áhrifa af breyttu fyrirkomulagi skimunar. Á það er bent í skýrslunni að vísbendingar eru um að tekið hafi að draga úr flugumferð og ferðamennsku samhliða vexti faraldursins í ágústmánuði bæði hér á landi og víða í Evrópu áður en almenn tvöföld skimun hófst á landamærunum 19. ágúst. Sú þróun virðist hafa haldið áfram. Einnig er sýnt skýrt fram á það í skýrslunni að áhættan af einfaldri skimun sé þó nokkuð meiri en af núverandi fyrirkomulagi. Því er líklegt að sá samdráttur vegna breytts fyrirkomulags skimunar, sem sviðsmyndin gefur til kynna að geti verið um 13-20 ma.kr., sé í raun töluvert minni að fyrrgreindum ástæðum. Mikill munur í einkaneyslu Einkaneysla tók einnig vel við sér eftir að faraldurinn rénaði og slakað var á samkomubanni í vor. Talið er að vöxtur í tekjum þjóðarbúsins af innlendri einkaneyslu eftir að slakað var á samkomubanni hafi verið svipaður að stærð og samdráttur í þjóðartekjum vegna minni einkaneyslu á meðan samkomubanninu stóð. Dragist óvissa á langinn getur það haft alvarleg og langvarandi áhrif. Stjórnvöld gegna að mati hópsins lykilhlutverki í að sporna gegn frekara tjóni, t.d. með því að dreifa byrðum áfallsins, skapa skilyrði til að fullnýta framleiðsluþætti þegar aðstæður leyfa, vernda samband atvinnurekenda og starfsfólks, standa vörð um viðskiptasambönd og tryggja að mikilvæg þekking og reynsla glatist ekki á meðan ástandið varir. Ábendingar hópsins eru: Að gagnlegt væri að útskýra markmið sóttvarnaaðgerða betur. Til bóta væri að auka fyrirsjáanleika um sóttvarnaaðgerðir eftir því sem við verður komið. Að skoða hvort aðrar sóttvarnaaðgerðir á landamærum séu mögulegar án þess að taka of mikla áhættu fyrir þróun faraldursins erlendis. Að skoða gaumgæfilega leiðir til að veita ferðaþjónustu stuðning til að viðhalda reynslu, þekkingu og viðskiptasamböndum á meðan ástandið varir. Greiningar á vegum starfshópsins Starfshópurinn er enn að störfum og stendur ýmis greiningarvinna hans yfir eða er að hefjast. Á meðal þess sem unnið er að er sviðsmyndagreining á vegum tölfræðihóps við Háskóla Íslands um þróun faraldursins miðað við mismunandi útfærslur sóttvarna. Skýrsluna má lesa hér að neðan.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Efnahagsmál Ferðamennska á Íslandi Samkomubann á Íslandi Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Fleiri fréttir Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Sjá meira