Óttast að Bretar séu búnir að missa tökin á faraldrinum Kristín Ólafsdóttir skrifar 6. september 2020 23:53 Nýju tilfelli veirunnar í Bretlandi hafa, líkt og í öðrum löndum í þessari síðari bylgju faraldursins, aðallega greinst meðal yngra fólks. Vísir/getty
Nýsmituðum af kórónuveirunni hefur fjölgað mjög í Bretlandi síðustu daga. Óttast er að bresk yfirvöld hafi misst tökin á faraldrinum. Nær þrjú þúsund manns greindust með veiruna í dag, sunnudag. Um er að ræða 50 prósent aukningu milli daga og þá hafa ekki fleiri greinst með veiruna á einum degi síðan í maí. Gabriel Scally, prófessor og fyrrverandi framkvæmdastjóri í lýðheilsumálum hjá breska heilbrigðiskerfinu (NHS), er einn þeirra sem hafa þungar áhyggjur af fjölgun smita. „Þau eru búin að missa tökin á veirunni,“ segir Scally í samtali við Guardian. „Þetta eru ekki lengur litlar hópsýkingar sem þau geta kveðið niður. Þetta er orðið landlægt í fátækustu samfélögunum og þetta er afleiðingin. Það er gríðarlegt áhyggjuefni þegar skólar og háskólar eru byrjaðir að opna á ný.“ Nýju tilfelli veirunnar í Bretlandi hafa, líkt og í öðrum löndum í þessari síðari bylgju faraldursins, aðallega greinst meðal yngra fólks. Matt Hancock heilbrigðisráðherra Bretlands segir fjölgun nýsmita „áhyggjuefni“ og beinir því til ungs fólks að gæta vel að sóttvörnum til að hlífa þeim sem eldri eru.
Bretland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp Erlent Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Enn ekkert spurst til Hákonar Innlent Lítið breyst á fimmtán árum Innlent Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Innlent Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Innlent Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Innlent Miðvinstristjórn mynduð í Danmörku Erlent Flugmenn lagt fram fleytilausn og staðan sögð erfið Innlent Fleiri fréttir Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp Miðvinstristjórn mynduð í Danmörku Hafnar ásökunum um nýtt hernaðarbrölt Japana Styttir ferðina vegna veikinda krónprinsessunnar Mótmæltu flutningi á ebólusmituðum Bandaríkjamönnum til Kenía Umdeildum vinstrimönnum meinuð koman til Bretlands Evrópskir og bandarískir öfgamenn lögðu saman á ráðin um fjöldabrottvísanir Frakkar tóku skuggaskip á Atlantshafi Deila í dómsal um hvort réttarhöldin verði opin Íranar gera árásir á Kúveit og Ísraelar sækja dýpra inn í Líbanon Veita sextán milljarða evra til Ungverjalands Hundruð handtekin vegna átaka í kjölfar sigurs PSG SAS fellir niður allt flug til Grænlands Norskur maður grunaður í máli Anne Elisabeth Hagen Margrét Þórhildur útskrifuð af sjúkrahúsi Krabbameinssjúkir gætu sloppið við lyfjameðferð Fjórir menn komnir út úr hellinum í Laos Flugumferð stöðvuð í München vegna mögulegs drónaflugs Buckingham-höll hafi fengið tölvupósta um misferli Andrews fyrir sex árum Ísrael og Rússland á svörtum lista vegna kynferðisofbeldis í átökum Bannar ráðuneytinu að stofna skaðabótasjóðinn Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Funduðu enn og aftur um Grænland Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Fyrirskipar hernum að taka enn stærri hluta Gasa Ætla að setja Trump á 250 dollara seðil en þurfa að breyta lögum Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Tveir særðir eftir að rússneskur dróni lendir á fjölbýlishúsi í Rúmeníu Samningsdrög samþykkt en beðið eftir grænu ljósi forsetans Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Sjá meira