Opið bréf til mannauðsstjóra Reykjavíkur Vigdís Hauksdóttir skrifar 24. ágúst 2020 16:30 Sæl Lóa Birna. Sem svar við tölvubréfi þínu þá mun ég ekki eiga aðkomu að úttekt þeirri sem Líf og sál ehf. hefur verið falið að framkvæma. Ég tel mér það í engu skylt enda er engin heimild til staðar í lögum eða reglum til þess að sú úttekt fari fram. Þá vek ég athygli á þeim kröfum sem ég set fram í lok þessa tölvubréfs, að fallið verði tafarlaust frá þeirri úttektarvinnu sem boðuð er og mun nú vera hafin. Jafnframt að hin svokallaða „yfirstjórn Reykjavíkur“ segi sig tafarlaust frá málinu sökum vanhæfis að lögum. Í upphaflegu tölvubréfi um úttektarvinnuna sem barst frá Helgu Björk Laxdal 17. ágúst sl. kemur fram að svokölluð „yfirstjórn Reykjavíkur“ hafi ákveðið að gangast fyrir úttektinni. Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef aflað mér þá stendur yfirstjórn þessi saman af borgarstjóra og sviðsstjórum Reykjavíkurborgar. Ákvörðunin um að hefja stjórnsýslumálið, sem beinist að kjörnum fulltrúum í borgarstjórn Reykjavíkur, var ekki tekin af borgarstjórn eða borgarráði. Ekkert samráð var því haft við kjörna borgarfulltrúa, áður en ákvörðun var tekin. Ákvörðunin var því tekin einhliða af embættismönnum borgarinnar. Þegar að úttektin beinist að kjörnum fulltrúum er vitanlega að lögum nauðsynlegt að ákvörðun um hana sé tekin á réttum og lögboðnum vettvangi og af til þess bærum aðila. Embættismenn borgarinnar hafa ekki heimild að lögum til þess að taka slíkar ákvarðanir. Ég tel því að ákvörðun „yfirstjórnar Reykjavíkur“ um að hefja úttektarvinnuna brjóti því í bága við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011. Ástæða hinnar ólögmætu úttektar er samkvæmt tölvubréfi Helgu Bjarkar Laxdal til borgarfulltrúa 17. ágúst sl. ábendingar til mannauðs- og starfsumhverfissviðs Reykjavíkurborgar „um að skoða þurfi starfsumhverfi starfsfólks Reykjavíkurborgar sem situr fundi borgarráðs eða þarf reglulega að taka sæti á fundum borgarráðs“. Ekki kemur fram hvaða ábendingar þetta eru. Að teknu tilliti til umræðu í fjölmiðlum sl. vikur og atvika sl. mánuði og ár tel ég ekki leika vafa á því að raunveruleg ástæða að baki úttektinni eru umkvartanir eins af sviðsstjórum Reykjavíkurborgar í minn garð, þ.e. Helgu Bjargar Ragnarsdóttur, skrifstofustjóra skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. Helga bar fram eineltiskvörtun á hendur mér árið 2019 og óskaði um leið eftir skoðun á því hvort ég hefði brotið sveitarstjórnarlög og siðareglur. Eineltis- og áreitnisteymis ráðhúss/miðlægrar stjórnsýslu/rannsóknarréttur ráðhússins, sem sett var saman til þess að rannsaka málið og m.a. þú áttir sæti í, lauk málinu. Um tilkynningar til mín um málalok vísast til bréfa eineltis og áreitnisteymis til mín, dags. 2. desember 2019 og 23. júní 2020, sem þú undirritaðir. Hin uppgefna ástæða fyrir úttektinni, sbr. framangreint, verður sett í samhengi við þetta kvörtunarmál Helgu Bjargar á hendur mér. Það er augljóst að „yfirstjórn Reykjavíkur“ hefur tekið ákvörðun um að halda áfram stjórnsýslumálinu gagnvart mér, þrátt fyrir að því sé formlega lokið. Embættismenn Reykjavíkurborgar, með borgarstjóra í fararbroddi, virðast ætla að standa sjálfir fyrir nýrri rannsókn á sama máli, núna með milligöngu þriðja aðila, Lífs og sálar ehf. Sá aðili er í engu hlutlaus úttektaraðili, þar sem hann er ráðinn til starfans af umræddri yfirstjórn og er um þóknun sína háður greiðslum frá þeim aðilum sem úttektina pantar, af hálfu Reykjavíkurborgar. Eins og gefur að skilja brýtur það gegn lögum að hefja stjórnsýslumál að nýju, sem lokið hefur verið endanlega við og tilkynnt þar um, sbr. m.a. ákvæði sveitarstjórnarlaga, stjórnsýslulaga og meginreglur sem gilda í stjórnsýslurétti. Ákvörðun „yfirstjórnar Reykjavíkur“ er því einnig ólögmæt af þessum sökum. Engin lagaskilyrði eru fyrir hendi til þess að endurupptaka stjórnsýslumálið sem lokið var við. Fyrir utan þetta þá sé ég ekki að nein lagaheimild sé að öðru leyti fyrir því að „yfirstjórn Reykjavíkur“ taki ákvörðun um hina boðuðu úttekt. Í erindi Helgu Bjarkar Laxdal þann 17. ágúst sl. er vísað til laga nr. 46/1980. Ég fæ ekki séð að úttekt sem þessi fái stoð í þeim lögum. Að því verður að huga að eftirlitsaðilinn samkvæmt sömu lögum, Vinnueftirlit ríkisins, hefur mér vitanlega ekki krafist slíkrar úttektar. Ég minni einnig á að úttekt sem þessi, sem beinist gegn kjörnum borgarfulltrúum, brýtur í bága við sveitarstjórnarlög, m.a. ákvæði 25. gr. um sjálfstæði sveitarstjórnarmanna í störfum. Þar segir:“ Sveitarstjórnarmenn eru sjálfstæðir í störfum sínum. Þeir eru einungis bundnir af lögum og eigin sannfæringu um afstöðu til einstakra mála.“ Með ákvörðun embættismanna í „yfirstjórn Reykjavíkur“ eru þeir farnir einhliða að vega að því sjálfstæði sem sveitarstjórnarmönnum ber að njóta lögum samkvæmt. Samkvæmt 29. gr. gilda sérstakar siðareglur fyrir sveitarstjórn, sem sveitarstjórnarmönnum ber að starfa eftir. Það er sá vettvangur sem unnt er að beina kvörtunarmálum á hendur borgarfulltrúum í. Eins og ég nefndi fyrr í tölvupósti þessum hefur slíku kvörtunarmáli á hendur mér vegna sömu ávirðinga þegar verið lokið. Þá geta einstakir starfsmenn eða embættismenn innan sveitarfélaga ekki tekið ákvörðun um rannsókn sem beinist að kjörnum sveitarstjórnarmönnum. Enginn grundvöllur er því samkvæmt sveitarstjórnarlögum til þess að fara fram með mál af þessu tagi. Eins og áður segir samanstendur „yfirstjórn Reykjavíkur“ af borgarstjóra og sviðsstjórum Reykjavíkurborgar. Ég tel augljóst að þeir aðilar séu vanhæfir samkvæmt stjórnsýslulögum nr. 37/1993 til þess að taka ákvörðun um úttektarvinnu þessa, annast málsmeðferð hennar eða fela þriðja aðila þá rannsóknarvinnu. Sömuleiðis verður Líf og sál ehf. jafn vanhæft til þess að vinna úttekt sem fyrirtækinu hefur verið falin af vanhæfum aðila samkvæmt stjórnsýslulögum. Ég vísa til 4.-6. tl. 3. gr. stjórnsýslulaga hvað þetta varðar. Fyrir það fyrsta er borgarstjóri, sem ákvörðunina tekur einhliða ásamt embættismönnum, pólitískur andstæðingur undirritaðrar í borgarstjórn Reykjavíkur, en er í þessu máli að beita stjórnsýsluvaldi gagnvart mér. Umrædd „yfirstjórn Reykjavíkur“ hefur verulegra hagsmuna að gæta hvað mál þetta varðar, enda nánir samstarfsmenn Helgu Bjargar Ragnarsdóttur, skrifstofustjóra, sem lagði fram þá kvörtun á hendur mér sem úttektarvinna þessi byggist á. Í yfirlýsingarblaði sem barst frá Lífi og sál ehf. kemur fram að um athugunina hafi beðið sviðsstjóri mannauðs og starfsumhverfissviðs Reykjavíkurborgar, þ.e. þú Lóa Birna. Þú hefur áður átt afskipti af málinu, þ.e. kvörtunarmáli Helgu Bjargar á hendur mér sem úttektarvinnan byggist augljóslega á, þegar þú áttir sæti í eineltis- og áreitnisteymi því sem rannsakaði málið. Þegar af þeirri ástæðu ertu vanhæf skv. 4. tl. 3. gr. stjórnsýslulaga til þess að fara með málið nú. Vanhæfi „yfirstjórnar Reykjavíkur“ leiðir að lögum til þess að málið og málsmeðferðin er ógild. Ákvörðunin og málsmeðferðin er sömuleiðis ólögmæt þar sem hún brýtur fyrirsjáanlega gegn lögum og reglum um persónuvernd. Þau gögn sem mér hafa borist vegna málsins nú benda ótvírætt til þess að persónuupplýsingum verði safnað saman og vinnsla persónuupplýsinga fari fram án lagastoðar. Í engu hefur verið upplýst um samþykki Persónuverndar á vinnslu persónuupplýsinga með þeim hætti sem áformað er við þessa úttekt. Í yfirlýsingu sem ég fékk senda frá Lífi og sál ehf. er staðfest sérstaklega að um vinnslu persónuupplýsinga verði að ræða. Er það fráleitt heimilt að slík vinnsla geti byggst eingöngu á samþykki þeirra sem eiga viðtal við Líf og sál ehf., eins og yfirlýsingin útheimtir. Þá tel ég að það brjóti í bága við lög að opinber aðili, eins og Reykjavíkurborg er, gangist fyrir úttekt sem þessari en án þess að viðkomandi aðilar og þeir sem hún beinist að fái að kynna sér efni skýrslunnar eða fái hana afhenta í heild sinni. Til viðbótar við þetta þá tel ég að yfirlýsing sú sem mér var send frá Líf og sál ehf. standist ekki skoðun. Samþykkis Persónuverndar hefur ekki verið aflað vegna fyrirhugaðrar meðferðar og vinnslu persónuupplýsinga við úttekt, sbr. framangreint. Kjörnir borgarfulltrúar, sem þó er ætlast til þess að taki þátt í úttektinni, fá ekki að sjá úttektina eða leggja mat á hana. Velta má fyrir sér í hvaða tilgangi þá er verið að gera úttektina og hvort að Líf og sál ehf. eigi upp á sitt einsdæmi að leggja fram helstu niðurstöður úttektarinnar án þess að viðkomandi aðilar fái tækifæri til þess að leggja mat á það hvort sú niðurstaða fái staðist. Ég skora því á þá sem standa fyrir þessari úttekt að falla nú þegar frá henni og/eða segja sig tafarlaust frá málinu vegna vanhæfis skv. stjórnsýslulögum. Verði ekki orðið við þeirri kröfu þá áskil ég mér rétt til þess að leita með málið til viðeigandi eftirlitsaðila, eftir atvikum með kæru til sveitarstjórnarráðuneytisins, sbr. kæruheimild í sveitarstjórnarlögum, með erindi til Persónuverndar, með kvörtun til umboðsmanns Alþingis eða með höfðun dómsmáls. Um er að ræða afrit af tölvupósti sem ég var að senda á mannauðsstjóra Reykjavíkur vegna úttektar yfirstjórnar Reykjavíkur á starfsemi borgarráðs. Höfundur er borgarfulltrúi Miðflokksins Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Vigdís Hauksdóttir Borgarstjórn Mest lesið Opið bréf til fullorðna fólksins Úlfhildur Elísa Hróbjartsdóttir Skoðun Vill Sjálfstæðisflokkurinn láta taka sig alvarlega? Dagbjört Hákonardóttir Skoðun Þjórsá í hættu – Hvammsvirkjun og rof á náttúrulegu ástandi árinnar Gunnar Þór Jónsson Skoðun Hví borgar útgerðin – ekki malarnáman? Guðmundur Edgarsson Skoðun Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun Hverjir eiga Ísland? Jón Baldvin Hannibalsson Skoðun Ég hef ofurtrú á manneskjunni í forvörnum og öryggi á bæjarhátíðunum Arnrún María Magnúsdóttir Skoðun Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Ertu nú alveg viss um að hafa læst hurðinni? Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til fullorðna fólksins Úlfhildur Elísa Hróbjartsdóttir skrifar Skoðun Vill Sjálfstæðisflokkurinn láta taka sig alvarlega? Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Þjórsá í hættu – Hvammsvirkjun og rof á náttúrulegu ástandi árinnar Gunnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Undirbúum börnin fyrir skólann með hjálp gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Enginn skilinn eftir á götunni Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Ég hef ofurtrú á manneskjunni í forvörnum og öryggi á bæjarhátíðunum Arnrún María Magnúsdóttir skrifar Skoðun Stúdentar eiga ekki að borga fyrir vanfjármögnun háskólanna Ármann Leifsson,María Björk Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hví borgar útgerðin – ekki malarnáman? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Vantraust Flokks fólksins á Viðreisn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun 48 daga blekking: Loforð sem leiðir til lögbrota? Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald skrifar Skoðun Málþóf á kostnað ungs fólks Lísa Margrét Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ómeðvituð vörn í orðræðu – þegar vald ver sjálft sig Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Við krefjumst sanngirni og aðgerð strax Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Verið öll hjartanlega velkomin á Unglingalandsmót á Egilsstöðum Jónína Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Úrsúla og öryggismálin - Stöndum gegn vígvæðingu Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Verðmætatap auðlindagjaldanna – Hverra og hvernig? Haukur V. Alfreðsson skrifar Skoðun Ertu nú alveg viss um að hafa læst hurðinni? Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Sanngirni að brenna 230 milljarða króna? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Strandveiðar eru ekki sóun Örn Pálsson skrifar Skoðun „Ísland mun taka þátt í þvingunaraðgerðum gegn Ísrael náist samstaða fleiri ríkja“ Einar Ólafsson skrifar Skoðun SFS skuldar Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Hvar er hjálpin sem okkur var lofað? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Áform um fleiri strandveiðidaga: Áhættusöm ákvörðun Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson skrifar Skoðun Flugnám - Fjórði hluti: Hlutverk Reykjavíkurflugvallar í flugnámi Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Slítum stjórnmálasambandi við Ísrael! Ólafur Ingólfsson skrifar Skoðun Aukið við sóun með einhverjum ráðum Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Kæru valkyrjur, hatrið sigraði líklega í þetta skiptið Arnar Laxdal skrifar Sjá meira
Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun
Ég hef ofurtrú á manneskjunni í forvörnum og öryggi á bæjarhátíðunum Arnrún María Magnúsdóttir Skoðun
Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun
Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald Skoðun
Skoðun Þjórsá í hættu – Hvammsvirkjun og rof á náttúrulegu ástandi árinnar Gunnar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Ég hef ofurtrú á manneskjunni í forvörnum og öryggi á bæjarhátíðunum Arnrún María Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Stúdentar eiga ekki að borga fyrir vanfjármögnun háskólanna Ármann Leifsson,María Björk Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald skrifar
Skoðun Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar
Skoðun Verið öll hjartanlega velkomin á Unglingalandsmót á Egilsstöðum Jónína Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun „Ísland mun taka þátt í þvingunaraðgerðum gegn Ísrael náist samstaða fleiri ríkja“ Einar Ólafsson skrifar
Skoðun Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson skrifar
Skoðun Flugnám - Fjórði hluti: Hlutverk Reykjavíkurflugvallar í flugnámi Matthías Arngrímsson skrifar
Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun
Ég hef ofurtrú á manneskjunni í forvörnum og öryggi á bæjarhátíðunum Arnrún María Magnúsdóttir Skoðun
Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun
Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald Skoðun