Lárus: Þetta bjargaði deginum Arnar Geir Halldórsson skrifar 13. mars 2020 20:54 Lárus Jónsson Þór TV / thorsport.is
Þór vann ótrúlegan endurkomusigur á Grindavík í Dominos deild karla í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld eftir að hafa verið undir nær allan leikinn. „Mér líður rosalega vel. Miðað við allar fréttir í dag og hvernig 2020 er búið að vera bjargaði þetta í það minnsta deginum,“ sagði Lárus Jónsson, þjálfari Þórs, í leikslok. „Það gekk mjög erfiðlega að ná að minnka forystuna. Mér fannst við spila miklu betur í síðari hálfleik. Vörnin okkar var hriplek í fyrri hálfleik en mér fannst við ná að þétta hana í síðari hálfleik en þá var Ingvi að setja niður stóra þrista fyrir þá. Við náðum aldrei að komast almennilega inn í þetta. Þetta var eiginlega bara kraftaverk í lokin. Ég held við höfum skorað 11 stig á rúmri mínútu.“ Lárus hrósaði sínu liði fyrir magnaðan karakter um leið og hann sagði ótrúlegt að finna fyrir stuðningi Þórsara í Höllinni í kvöld. „Strákarnir gáfust aldrei upp. Mér fannst bæði lið vera svolítið á hælunum í upphafi, kannski vegna aðstæðna í þjóðfélaginu. Menn voru búnir að vera að velta fyrir sér hvort það ætti að spila leikinn og þetta var svolítið eins og æfingaleikur í byrjun. Mér finnst ótrúlegt hvað það mættu margir og studdu við bakið á okkur. Það gerði gæfumuninn á þessum lokasekúndum,“ sagði Lárus. Þór þarf sigur gegn KR í lokaumferð deildarinnar og um leið þurfa Akureyringar að treysta á að Valur eða Þór Þorlákshöfn fái ekki fleiri stig. Óvissa ríkir hvenær og með hvaða hætti lokaumferð deildarinnar verður spiluð. „Við munum bara undirbúa okkur fyrir að spila við mjög öflugt lið KR, sennilega fyrir luktum dyrum og það er miður. Ef þú ert ekki að spila fyrir framan áhorfendur, til hvers ertu þá að spila íþróttir?“ sagði sigurreifur þjálfari Þórs að endingu.
Dominos-deild karla Mest lesið Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Enski boltinn Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Körfubolti Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Hafa ekki heyrt frá Hearts: „Kom mér jafn mikið á óvart og þér“ Íslenski boltinn Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Þarf vernd lögreglu vegna reiði Rómverja Fótbolti Nasistaborði í Magdeburg til rannsóknar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Fleiri fréttir Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Sjá meira