Fyrsta veirutengda dauðsfallið í Bandaríkjunum staðfest Vésteinn Örn Pétursson skrifar 1. mars 2020 07:24 Trump Bandaríkjaforseti (t.h.) hefur hvatt til stillingar. Vísir/Getty
Heilbrigðisyfirvöld í Bandaríkjunum hafa staðfest fyrsta andlátið af völdu COVID-19 sjúkdómsins þar í landi. Maðurinn var á sextugsaldri og lést í Washingtonríki. Þá er maðurinn sagður hafa glímt við undirliggjandi heilsufarsvandamál. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagt að líklegt sé að fleiri tilfelli sjúkdómsins, sem valdið er af kórónuveiru sem nú dreifist um heiminn, komi upp. Yfirvöld séu þó við öllu búin. Þá biðlar hann til fjölmiðla, stjórnmálamanna og annarra að gera sitt besta til þess að dreifa ekki ótta í samfélaginu. Í dag bárust líka fregnir af fyrstu dauðsföllum vegna sjúkdómsins, bæði í Ástralíu og í Taílandi. Í Ástralíu lést 78 ára gamall maður sem smitaðist af kórónuveirunni á skemmtiferðaskipinu Diamond Princess í Japan í síðasta mánuði. Í Taílandi var það hins vegar 35 ára gamall maður sem beið bana, en sá hafði einnig þjáðst af beinbrunasótt. Samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) hafa 85 þúsund tilfelli kórónuveirunnar verið staðfest í alls 57 löndum. Tæp þrjú þúsund hafa þá látið lífið, og þá að lang mestu leyti í Kína, þar sem veiran er talin eiga uppruna sinn.
Ástralía Bandaríkin Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Taíland Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Erlent Fleiri fréttir Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Sjá meira