De Bruyne tæpur fyrir nágrannaslaginn gegn Man. Utd Ísak Hallmundarson skrifar 5. mars 2020 14:00 De Bruyne í leiknum síðustu helgi vísir/getty
Kevin de Bruyne, leikmaður Manchester City, er tæpur fyrir nágrannaslaginn gegn erkifjendunum í Manchester United sem fer fram á sunnudaginn. De Bruyne var ekki með City í gær þegar liðið sló Sheffield Wednesday út úr FA-bikarnum. Hann er sagður vera að glíma við bakmeiðsli. Pep Guardiola, þjálfari Manchester City, segist ekki geta sagt til um hversu lengi Belginn verður frá keppni, en hann varð fyrir meiðslum í úrslitaleik enska deildarbikarsins síðustu helgi. „Við vitum ekki hversu lengi hann verður frá - vonandi ekki of lengi,“ sagði Guardiola. „Hann féll niður og lenti illa á síðustu mínútu leiksins um helgina.“ Það er vel hægt að færa rök fyrir því að de Bruyne hafi verið einn besti leikmaður City í vetur og er því mikill missir fyrir liðið að geta ekki teflt honum fram gegn nágrönnunum um helgina. De Bruyne og félagar sitja í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar, 22 stigum á eftir Liverpool. Þeir eiga þó góða möguleika á að bæta tveimur titlum við safnið í vor, en þeir eru með 2-1 forystu á Real Madrid eftir fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu og mæta svo Newcastle í 8-liða úrslitum FA-bikarsins.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Hafi snúist hugur og vilji nú fara til Liverpool Segir að hann myndi kýla netníðingana í nefið ef þeir stæðu fyrir framan hann Arteta með vondar fréttir af meiðslum Ødegaards Óviss um að hann sé velkominn á Oasis tónleikana Ten Hag rólegur þrátt fyrir fullkomið kvöld Lið Stefáns skoraði úr sextán vítum Auðvelt á Old Trafford gegn C-deildarliðinu Ten Hag aðvarar Antony: „Verður að vinna sér inn réttinn til að spila“ Liverpool birtir áður óséð efni frá Reykjavík: „Beið í sextíu ár eftir því að sjá þetta“ „Þú færð mikið borgað svo þú mátt ekki sýna tilfinningar“ Willum Þór og félagar lögðu Hollywood-lið Wrexham Höjlund enn fjarri góðu gamni en varnarþríeykið klárt í slaginn Englandsmeistarinn Ingle með slitið krossband Fannst mark Gabriels vera ólöglegt Sjá meira