Úlfarnir aðeins þremur stigum frá Meistaradeildarsæti eftir sigur á Spurs

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Raúl Jiménez fagnar sigurmarki sínu gegn Spurs.
Raúl Jiménez fagnar sigurmarki sínu gegn Spurs. vísir/getty

Wolves er aðeins þremur stigum frá Meistaradeildarsæti eftir 2-3 útisigur á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag. Með sigrinum fóru Úlfararnir upp fyrir Spurs í töflunni.

Úlfarnir lentu tvisvar sinnum undir í leiknum en komu til baka og unnu annan deildarleikinn í röð. Þetta var hins vegar annað tap Spurs í deildinni í röð.

Steven Bergwijn kom Tottenham yfir á 13. mínútu en Matt Doherty jafnaði á 27. mínútu.

Á lokamínútu fyrri hálfleiks kom Serge Aurier heimamönnum svo aftur yfir með góðu vinstri fótar skoti í fjærhornið.

Diego Jota jafnaði á 57. mínútu með sínu sjötta marki í síðustu þremur leikjum.

Á 73. mínútu skoraði Raúl Jiménez sigurmark Úlfanna eftir að hafa leikið skemmtilega á Japhet Tanganga. Þetta var þrettánda deildarmark Mexíkóans á tímabilinu og hann er því búinn að jafna markafjölda sinn frá því á síðasta tímabili.

Wolves er í 6. sæti deildarinnar með 42 stig, tveimur stigum og einu sæti á undan Tottenham.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira