Hvaðan eiga peningarnir eiginlega að koma? Ole Anton Bieltvedt skrifar 10. febrúar 2020 10:00 Mikið er rætt og ritað um heilbrigðisþjónustuna á Íslandi. Hafa ýmsir tekið til máls í þessari umræðu, líka góðir menn og gegnir. Þorsteinn Pálsson, merkur og snjall stjórnmálamaður, skrifar grein í Fréttablaðið nýlega og spyr með þessari fyrirsögn: „Engin plön um að lyfta Íslandi úr botnsætinu“. Fjallar hann þar m.a. um, að Íslendingar verji nú minnstu hlutfalli af vergri landsframleiðslu til heilbrigðisþjónustu af Norðurlöndunum. Annar merkur maður og frumlegur, sem reyndar kom með þá tilgátu, að Íslendingar væru vitlausari en aðrar þjóðir, væntanlega að honum undanskildum, Kári Stefánsson, stofnaði til herferðar til „endurreisnar heilbrigðiskerfisins“, þar sem 11% voru sett sem það hlutfall af vergri landsframleiðlsu, sem ganga skyldu til heilbrigðiskerfisins. Féllust 80 þúsund landsmenn á það markmið, ég hygg þó án þess að hugsa vel, hvað það þýddi og hverjar afleiðingar það kynni að hafa fyrir aðra málaflokka. Ef menn hvetja til aukinna ríkisútgjalda á einu sviði, verða þeir að útskýra í leiðinni, af hvaða öðrum útgjaldasviðum taka skal féð, eða, hvernig afla skal nýrra tekna, skatta, telji menn það leiðina. Verg landsframleiðslu 2018 (síðasta tala) var 2.803,0 milljarðar króna (mia), og í fjárlögum fyrir 2020 falla þessir útgjaldaliðir beint undir heilbrigðisþjónustu: Sjúkrahúsþjónusta 105,6 mia, heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa 54,9 mia, hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta 54,4 mia og lyf og læknisvörur 26,3 mia, samtala 241,3 mia. Er það hlutfall 8,6% af vergri landsframleiðslu. Ekki er vitað, hvert Þorsteinn Pálsson vill fara með hlutfall heilbrigðisþjónustu af vergri landsframleiðslu, en Kári talar enga tæpitungu; 11% skulu það vera. 11% af vergri landsframleiðslu myndi þýða, að hækka yrði framlag til heilbrigðismála úr 241,3 mia í 308,33 mia, eða um 67,0 mia á ári. Engin skiptimynt það. Hugsaði vísindamaðurinn mikli – en það er hann víst svo sannarlega – eitthvað til þess, hvaðan þessir fjármunir ættu að koma? Hér er um hækkun framlags að ræða, sem nemur hvorki meira né minna en 200.000,00 krónum, á hvers mannsbarn í landinu, og það á hverju ári! Af hvaða öðrum útgjaldaliðum ríkisins ætti að taka þetta mikla fé, eða, hvaða skatta skyldi hækka? Sem dæmi, er heildarkostnaður við löggæslu 29,8 milljarðar, en lögregluyfirvöld voru að gefa til kynna, að, ef löggæzla ætti að komast i viðunandi horf, vantaði yfir 200 nýja lögreglumenn. Varla kemur fé þaðan. Eða, ætti að taka þetta fé af samgöngumálum? Þau eiga að fá 47,0 mia 2020, og þótti mörgum þar við nögl skorið. Má klípa af umhverfismálum? Þau eiga að fá 20,0 mia 2020. Það væri af og frá á tímum grænnar framrásar. Kannske mætti hirða aðeins af menningu og listum, sem eiga að fá 15,8 mia? Þá myndu trúlega koma skaðræðisóp frá Lilju Dögg og fleirum. Stórum kór. Hvað með háskólakerfið, sem fær 44,1 mia? Kunnugir telja, að hér sé nú þegar líka um alvarlegt og krítiskt vanhald að ræða, sem þyrfti að bæta, en alls ekki rýra, enda er góð menntun forsenda fyrir framtíðarheill þjóðarinnar. Varla trúi ég því, að Kári renni hýru auga til málefna aldraðra, 82,4 mia, eða örorku og málefni fatlaðs fólks, 72,1 mia? Sannleikurinn er sá, að það er mikil þörf á flestum þjónustu- og útgjaldasviðum ríkissjóðs, og víða væru frekari framlög bæði æskileg og nauðsynleg. Hafa verður í huga, að heildarrammi frumgjalda ríkisins fyrir 2020 er „aðeins“ 813,7 mia, og, ef málefnum aldraðra, örorku og málefnum fatlaðra, fjölskyldumálum og lýðheilsumálum er bætt við framlagi til heilbrigðisþjónustu - en þetta er allt nátengt og gæti í víðari skilningi flokkast undir „heilbrigðis- og velferðarþjónustu“ - þá erum við komin í 447,1 mia, eða 56,6% af heildar útgjöldum ríkisins 2020. Hlutfall af vergri lands-framleiðslu væri þá 16%. Ekki veit ég, hvernig hin Norðurlöndin reikna þetta. Það, sem að mati undirritaðs stenzt enga skoðun í útgjaldaáætlun ríkisins 2020, er framlag til sjávarútvegs og fiskeldis, 7,0 mia. Er það ekki meira, en auðlindagjaldið, sem sjávarútvegurinn greiðir í ríkissjóð? Ótækt! Flestir munu sammála um, að sjávarútveginum bæri að leggja miklu meira fram til samneyzlunar, en nú er, en ekki hefur tekizt að knýja slíka aukningu fram, vegna sterkra áhrifa þeirrar greinar á stjórnvöld, öflugrar klíku, og er ekki líklegt, að breyting verði á því, þrátt fyrir réttmæti þess. Landbúnaður fær 16,2 milljarða, sem er umdeilanlegt framlag og fer sennilega mikið í niðurgreiðslu offramleiddra landbúnaðarafurða á erlendum markaði, en ekki breytist þetta, svo lengi sem D og B eru hér í valdastöðu. Auðvitað eru heilbrigðismál feykilega þýðingarmikil, en á þeim svo líka önnur mikilvæg hlið. Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði, og Jóhanna E. Torfadóttir, næringar- og lýðheilsufræðingur, skrifuðu sameiginlega grein í Fréttablaðið á dögunum. Þar kom fram, að óhollt mataræði veldur fleiri sjúkdómum og dauðsföllum, en reykingar, misnotkuna lyfja, neyzla vímuefna og áfengisneyzla – og er þá mikið sagt – samanlagt. Sennilega gæti öflugt og virkt fyrirbyggjandi starf, í gegnum víðtæka og markvissa fræðslu um mataræði, lífshætti og lífsstíl, örvun til íþrótta, líkamsræktar og hollari lífshátta, markviss stefna í matvælaframleiðslu og næringarmálum m.m., dregið miklu meira úr kostnaði við sjúka, en slíkar aðgerðir myndu kosta. Hér má líka vitna í landlækni, Ölmu D. Möller, en í grein, líka í Fréttablaðinu, skýrir hún frá því, að Íslendingar séu þyngstir allra Evrópuþjóða, en 27% fullorðinna voru með líkamsþyngdar-stuðul 30, eða hærri, árið 2017, samanborið við 12% árið 2002. Réttur stuðull er 25, eða minna. Eins og kunnugt er, veldur offita miklum og alvarlegum sjúkdómum, svo sem hjarta- og æðasjúkdómum, krabbameini, öndunarfærasjúkdómum og sykursýki, líka sálrænni og andlegri vanheilsu, sem aftur leiðir til mikils þjónustu- og kostnaðarálags fyrir heilbrigðisþjónustuna. Að lokum þessi áherzla: Ef menn koma með tillögur um aukin útgjöld til ákveðinnar þjónustu, verða menn jafnframt, að gera grein fyrir, hvaðan féð á að koma. Annað er ófullnægjandi og tilgangslaust tal. Hreint klór. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Ole Anton Bieltvedt Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar