Saksóknarar í Danmörku greindu frá því í morgun að farið verði fram á að fjársvikarinn Britta Nielsen verði dæmd til átta ára fangelsisvistar. Segir saksóknari að brot Nielsen séu einhver alvarlegustu efnahagsbrot sem framin hafa verið í Danmörku.
Réttarhöld í máli Brittu Nielsen hófust í október en hún er ákærð fyrir að hafa dregið sér á annað hundrað milljónir danskra króna frá danska ríkinu þegar hún starfaði hjá félagsmálaráðuneytinu þar í landi.
Nú styttist í annan endann á réttarhöldunum og flutti saksóknari lokaræðu sína í morgun þar sem hann greindi frá því að hann færi fram á átta ára dóm. Verjandi Nielsen heldur sína lokaræðu síðar í dag.
Hefur játað sekt að stærstum hluta
Nielsen hefur nú þegar játað sekt að stærstum hluta í málinu. Nielsen hefur þó neitað að hafa borið ábyrgð á einstaka millifærslum. Nielsen sagðist í vitnastúku hafa fallið í freistni og á sínum tíma reynt að lagfæra bága fjárhagsstöðu heimilisins þegar hún byrjaði að svíkja fé út úr Félagsmálastofnun Danmerkur.
Í ákæru sagði að á árunum 1997 til 2018 hafi hún dregið sér fé 298 sinnum með ólöglegum hætti. Á hún að hafa dregið sér 115 milljónir danskra króna, um 2,1 milljarð íslenskra króna. Þá segir í ákæru að Nielsen hafi einnig dregið sér fé á árunum 1993 til 2002, þá með öðrum aðferðum. Að auki er hún ákærð fyrir skjalafals og embættisbrot.
Handtekin í Suður-Afríku
Nielsen, auk þriggja uppkominna barna sinna og tengdasonar eru ákærð í málinu. Hafi börnin og tengdabarn þegið háar fjárhæðir frá Nielsen, sem þau hefðu mátt vita að væru illa fengnar. Nielsen var handtekin í íbúð Jóhannesarborgar í Suður-Afríku fyrir hálfu öðru ári og voru fulltrúar dönsku efnahagsbrotalögreglunnar viðstaddir handtökuna.
Hún var svo framseld til Danmerkur. Vitað er að Britta og börn hennar hafi meðal annars nýtt féð í að fjárfesta í dýrum hrossum, bílum og skartgripum.