Landsbankinn hagnaðist um 18,2 milljarða Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 6. febrúar 2020 17:20 Lagt verður til við aðalfund bankans að greiddur verði út 9,5 milljarða króna arður til hluthafa bankans, íslenska ríkisins, vegna síðasta árs. vísir/hanna
Landsbankinn hagnaðist um 18,2 milljarða króna á síðasta ári, eftir skatta. Lagt verður til við aðalfund bankans að greiddur verði út 9,5 milljarða króna arður til hluthafa bankans, íslenska ríkisins, vegna síðasta árs en arðurinn nemur 0,40 krónu á hlut.Þetta kemur fram í uppgjöri bankans fyrir síðasta ár sem kynnt var í dag. Í tilkynningu til Kauphallar segir að arðsemi eiginfjár Landsbankans hafi verið 7,5% á árinu 2019, samanborið við 8,2% arðsemi árið 2018. Arðsemi eiginfjár án bankaskatts var 9,2% en markmið bankans er að ná að lágmarki 10% arðsemi eiginfjár, að teknu tilliti til áhrifa bankaskatts. Eigið fé Landsbankans nam 247,7 milljörðum króna í árslok 2019 og var eiginfjárhlutfallið 25,8% af áhættugrunni. Þá jukust útlán bankans um 76 milljarða króna á síðasta ári. Hreinar vaxtatekjur námu 39,7 milljörðum króna samanborið við 40,8 milljarða króna árið 2018. „Hreinar þjónustutekjur Landsbankans námu 8,2 milljörðum króna árið 2019 og standa í stað á milli ára. Aðrar rekstrartekjur námu 8,5 milljörðum króna á árinu 2019 samanborið við 3,6 milljarða króna á árinu 2018 sem er hækkun um 136% á milli ára. Hækkunin skýrist aðallega af jákvæðum gangvirðisbreytingum óskráðra hlutabréfa. Neikvæð virðisbreyting útlána og krafna nam 4,8 milljörðum króna samanborið við jákvæða virðisbreytingu upp á 1,4 milljarð króna árið 2018. Vanskilahlutfall útlána stendur í stað á milli ára en það var 0,8% í lok árs 2019 og 2018,“ segir í tilkynningu Landsbankans til Kauphallar.
Efnahagsmál Íslenskir bankar Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Fleiri fréttir Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Sjá meira