Wuhan-veiran breiðist út um allt meginland Kína Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 30. janúar 2020 06:23 Þetta fólk er bæði með grímur og hlífðargleraugu þar sem það ferðast um í neðanjarðarlestarkerfi í nágrenni Beijing. vísir/epa
Tala látinna vegna hinnar svokölluðu Wuhan-veiru heldur áfram að hækka og stendur nú í 170 manns. Þá hefur veiran nú breiðst út um allt meginland Kína eftir að stjórnvöld staðfestu að eitt tilfelli hefði komið upp í Tíbet. Kínversk stjórnvöld segja að alls séu 7711 staðfest smit. Veiran, sem er ný tegund kórónaveiru og ber formlega heitið 2019-nCoV, á uppruna sinn í kínversku borginni Wuhan þaðan sem hún hefur breiðst út til allra héraða landsins og sextán annarra landa, svo staðfest sé. Þá mun Alþjóðaheilbrigðisstofnunin funda í dag til þess að ræða hvort lýsa þurfi yfir neyðarástandi vegna veirunnar. Tedros Adhanom Ghebreyesus, yfirmaður WHO, segir framgöngu veirunnar undanfarna daga, og þá sérstaklega í nokkrum löndum og með tilliti til smita á milli manna, vera áhyggjuefni. Á blaðamannafundi í gær nefndi hann sérstaklega smit í Þýskalandi, Víetnam og Japan. „Þrátt fyrir að fjöldi smitaðra utan Kína sé enn tiltölulega lítill, er möguleiki á stærri faraldri til staðar,“ sagði Ghebreyesus. Ekki er til nein lækning eða bóluefni fyrir veiruna en margir þeirra sem smitast fá aðeins væg einkenni og ná sér að fullu. Veiran getur þó einnig valdið mjög skæðri lungnabólgu og dauða. Er veiran talin sérstaklega hættuleg eldra fólki og fólki með undirliggjandi sjúkdóma.
Kína Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira