Hildur Guðnadóttir tónlistarmaður er talin langlíklegust þeirra sem tilnefndir eru til Óskarsverðlaun fyrir bestu frumsömdu tónlist í kvikmynd til að hreppa hin eftirsóttu verðlaun fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Joker. Verðlaunin verða veitt 10. febrúar.
Menn geta velt vöngum fram og til baka en þeir gantast ekki með peninga sína. Stuðullinn á Hildi á vefmálasíðunni Betsson er aðeins 1,3 sem þýðir með öðrum orðum að ef einhver veðjar á hana þúsund krónum þá fær sá hinn sami 1300 krónur til baka. Sem er ekki mikið hætti menn fé sínu í veðmálum.
Til samanburðar þá er stuðullinn á Thomas Newman fyrir tónlist í 1917 3,5, Alexandre Desplat fyrir Litle Women 10, Rayndy Nyeman fyrir Marriage Story er með stuðulinn 25 og John Williams, þekktasti kvikmyndatónlistarhöfundur veraldar, fyrir tónlist í myndinni Star Wars The Rise of Skywalker með 40 í stuðul. Sem þýðir að menn telja afar ólíklegt að hann hreppi enn ein verðlaunin fyrir sitt framlag að þessu sinni. Nánast útilokað.
Gott gengi Hildar á vettvangi verðlauna og viðurkenninga hefur verið með miklum ágætum að undanförnu, sannkölluð sigurganga. Fyrr í mánuðinum vann Hildur Golden Globe fyrir tónlist sína í Joker. Hún hlaut Emmy-verðlaunin fyrir tónlistina við Chernobyl í september í fyrra. Þá hlaut hún einnig verðlaun fyrir tónlistina í Joker á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum og var valin sjónvarpstónskáld ársins á World Soundtrack Awards. Svo eitthvað sé nefnt.
Eins og margoft hefur komið fram; fari svo að Hildur hreppi Óskarinn verður hún fyrst Íslendinga til þess. Ef síða Betsson er skoðuð nánar, um líkur á Óskarsverðlaunum þá telja menn þar á bæ Jouquin Phoenix nánast öruggan með verðlaunin sem besti leikari í aðalhlutverki (1,03 stuðull) og að 1917 hreppi titilinn Besta kvikmyndin (1,4 stuðull).
Flestir veðja á að Hildur Guðna hreppi Óskarinn
