Níu látnir vegna Wuhan-veirunnar og 440 sýktir Samúel Karl Ólason skrifar 22. janúar 2020 06:42 Yfirvöld Kína hafa rakið veiruna til fiskmarkaðar í borginni Wuhan. Þar munu sölumenn hafa selt lifandi og villt dýr með ólögmætum hætti, auk þess að selja fiskafurðir. Uppruni veirunnar hefur þó ekki verið staðfestur. AP/Dake Kang
Yfirvöld Kína vara við því að Wuhan-veiran svokallaða geti stökkbreyst og dreifst frekar. Baráttan gegn veirunni sé nú á mikilvægu stigi. Minnst níu eru látnir og 440 sýktir í Kína og öðrum ríkjum. Talið er að veiran, sem gengur undir tæknilega nafninu 2019-nCoV, sé af nýrri tegund kórónaveiru sem ekki hafi fundist áður í manneskjum Vísbendingar eru um að veiran smitist í gegnum öndunarfæri. Yfirvöld Kína hafa rakið veiruna til fiskmarkaðar í borginni Wuhan. Þar munu sölumenn hafa selt lifandi og villt dýr með ólögmætum hætti, auk þess að selja fiskafurðir. Uppruni veirunnar hefur þó ekki verið staðfestur. Samkvæmt frétt BBC hafa yfirvöld Kína gefið verulega í varðandi tilraunir til að sporna gegn frekari dreifingu veirunnar. Vitað er til þess að minnst 2.197 manns hafa komist í tæri við fólk sem hefur smitast. Ekki er talið að nokkur aðili hafi smitað fleiri en tíu aðra, en slíkir aðilar kallast „ofursmitarar“. Veiran hefur greinst í Kína, Taílandi, Taívan, Suður-Kóreu, Japan og Bandaríkjunum. Allir sem smitast hafa utan Kína ferðuðust nýverið til Wuhan. Yfirvöld margra ríkja í nálægð við Kína hafa tilkynnt hertara eftirlit með kínverskum ferðalöngum. Þó er óttast að útbreiðsla veirunnar muni aukast á næstu dögum þar sem margir Kínverjar munu leggja land undir fót vegna nýárshátíðar þar í landi. Ríkisstjórn Kína hefur varið héraðsstjórar og borgarstjórnir gegn því að halda upplýsingum um smit leyndum og segja að það gæti gert ástandið mun verra. Nauðsynlegt sé að halda íbúum og öðrum upplýstum.
Kína Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Sjá meira