Jóhann Berg stefnir á að njóta þess að spila á Englandi næstu árin Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 30. júlí 2020 22:30 Jóhann Berg í leik gegn Peterborough United í FA-bikarnum. Anthony Devlin/Getty Images
Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson hefur átt hálfgert martraðar tímabil með enska úrvalsdeildarfélaginu Burnley þó svo að liðinu hafi gengið framar vonum á nýafstöðnu tímabili. Liðið lenti í 10. sæti með 54 stig, líkt og Sheffield United en aðeins lakari markatölu. Jóhann Berg byrjaði aðeins sex leiki fyrir Burnley hins vegar ásamt því að koma af sex sinnum af bekknum. Hann byrjaði þó síðustu tvo leiki deildarinnar ásamt því að koma inn af bekknum í tveimur leikjum þar á undan. Alls komu 220 af þeim 623 mínútum sem Jóhann lék á tímabilinu í síðustu fjórum leikjum deildarinnar. „Þegar þú lendir í meiðslum færðu venjulega ákveðinn tímaramma, fimm til sex mánuðir eða hvað sem það er. Ég hef hins vegar lent í allskyns vöðvameiðslum, hef snúið til baka og lent aftur í meiðslum,“ sagði Jóhann Berg í viðtali við vef Burnley. Þar ræðir hann einnig þær styrktaræfingar sem hann hefur verið að gera. Hann hefur verið að vinna mikið í miðsvæði líkamans, í kringum mjaðmirnar og rassinn. „Vonandi er þetta búið núna. Við höfum unnið mikið í skrokknum á mér, ég og allir sjúkraþjálfararnir.“ „Þetta var frábært tímabil, held við getum öll verið sammála um það. Það hefur verið erfitt að vinna okkur og við höfum einnig skorað nokkur mörk sjálfir. Við erum með fjóra frábæra framherja sem hafa allir komist nokkrum sinnum á blað. Við höfum verið góðir á öllum sviðum vallarins og þetta er líklega eitt besta tímabil í sögu félagsins myndi ég halda.“ Jóhann Berg vill njóta þeirra ára sem hann á eftir. „Ég vill bara njóta fótboltans. Ég er 29 ára gamall og verð þrítugur í október. Ég vill vera á vellinum eins lengi og mögulegt er. Njóta þess að spila í úrvalsdeildinni sem er besta deild í heimi fyrir mér. Ég vill bara njóta þess í nokkur ár í viðbót,“ sagði landsliðsmaðurinn að endingu.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Allt annað en sáttur með Frey Fótbolti Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Fótbolti Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Körfubolti Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Fótbolti Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Enski boltinn „Fyrr skal ég dauður liggja“ Enski boltinn „Geitin“ í kvennakörfunni hætt Körfubolti Bíður í startholunum í Washington: „Ég elska Ísland og Selfoss“ Körfubolti Hafa ekki tapað undanúrslitaleik í nítján ár Handbolti Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Körfubolti Fleiri fréttir Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Chelsea skrapaði botninn með Southampton Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ „Spiluðum mjög vel í dag“ „Við þurfum annan titil“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah „Eigum skilið að finna til“ Asensio hetjan í endurkomu Villa Öruggur sigur Spurs og Wolves vann óvænt Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Moyes: Greinilegt peysutog en við áttum að vera komnir í 3-0 Amorim: Við þurfum að lifa þetta tímabil af Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Sjá meira