Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. júlí 2026 21:02 Pedro Porro mætir aftur í vinnuna sem heimsmeistari en hann var í stóru hlutverki hjá Spánverjum á HM í sumar. EPA/DANIEL HAMBURY Jamie Redknapp, fyrrum leikmaður Tottenham og Liverpool, er ánægður með hvernig hefur verið haldið á spöðunum hjá hans gamla félagi Tottenham í sumar.
Tottenham lenti óvænt í fallbaráttu á síðustu leiktíð en rétt náði að bjarga sér í lokin. Forráðamenn félagsins hafa nú ráðið Roberto De Zerbi og gefið honum tækifæri til að eyða pening í leikmenn. Sama sagan á ekki að endurtaka sig á nýju tímabili. Ekkert félag hefur eytt jafnmiklu og Tottenham í sumar og Redknapp hrósar félaginu í viðtali við Sky Sports: „Ég er mjög hrifinn af því hvernig Tottenham hefur hagað sér í þessum glugga. Þetta er í fyrsta skipti í langan tíma sem ég sé Tottenham hegða sér eins og stórklúbbur. Leikmennirnir sem þeir hafa fengið, Tonali og Fernandes, verða frábærir miðjumenn. Þeir verða í hæsta gæðaflokki, nákvæmlega það sem þeir þurfa,“ sagði Jamie Redknapp sem lék með Tottenham frá 2001 til 2005. „Ef maður ætti að horfa á eitt svæði sem vantar upp á þá væri það klárlega framlínan. Geta þeir fengið einhvern til að hjálpa [Dominic] Solanke og létta pressunni af honum? [Mohammed] Kudus kemur líka til baka og [Dejan] Kulusevski er að koma til baka, ég er mikill aðdáandi hans,“ sagði Redknapp. „Þannig að þeir eru í virkilega, virkilega góðri stöðu. Jafnvel sumir af leikmönnunum sem þeir hafa fengið á frjálsri sölu. [Marcos] Senesi verður góður fyrir liðið. Hann hefur staðið sig frábærlega hjá Bournemouth,“ sagði Redknapp. „Miðað við hvernig þeir hegða sér og stjórana sem þeir hafa fengið þá held ég að þeir muni eiga virkilega sterkt tímabil í ár. Og það hef ég ekki sagt í langan tíma,“ sagði Redknapp.
Enski boltinn Tottenham Hotspur Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Sjá meira