Innlent

Herða reglur um heimsóknir á dvalarheimilum

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá tónleikum Ingó Veðurguðs á Hrafnistu í samkomubanninu fyrr á árinu.
Frá tónleikum Ingó Veðurguðs á Hrafnistu í samkomubanninu fyrr á árinu. Vísir/Vilhelm

Neyðarstjórn Hrafnistu hefur ákveðið að takmarka fjölda gesta á dvalarheimili fyrirtækisins þannig að aðeins einn aðstandandi má nú heimsækja hvern íbúa í senn. Landlæknir hvatti hjúkrunarheimili í gær að endurskoða heimsóknarreglur og eru breytingarnar til komnar vegna þessa. Í yfirlýsingu frá stjórninni segir að undanþága sé einungis veitt við mikil veikindi íbúa.

Þá verður gestum gert að spritta hendur og fara beint inn í herbergi viðkomandi íbúa og ekki stoppa á leiðinni. Sé viðkomandi ekki inn á herbergi eigi að biðja starfsmenn um að sækja þau. Gestirnir eigi ekki að gera það sjálfir.

Gestum verður einnig gert að virða tveggja metra regluna og forðast snertingu við íbúa.

Í reglunum segir að gestir megi ekki koma á dvalarheimilin ef þeir séu í einangrun eða sóttkví, ef þeir séu að bíða úr niðurstöðum úr sýnatöku, sýni einkenni flensu eða hafi verið erlendis.

Reglurnar hafa þegar tekið gildi og verða endurskoðaðar eftir þörfum.

Á hjúkrunarheimili Áss hafa svipaðar reglur verið teknar upp. Þar mega tveir gestir að hámarki heimsækja íbúa og eiga þeir að forðast sameiginleg svæði eins og setustofur og forðast alla aðra en þá sem þeir eru komnir til að heimsækja.

„Undanfarið hafa kannski allir orðið fullslakir gagnvart veirunni og því slakað aðeins á sínum smitvörnum. Við viljum því ítreka við ykkur að gæta að ykkar persónulegu smitvörnum, nota handþvottinn og sprittið óspart, ALLS EKKI koma í heimsóknir ef þið eruð með einhver einkenni frá öndurfærum eða eitthvað slöpp,“ segir í yfirlýsing á vef Áss.

Forsvarsmenn Eirar eru að vinna að sambærilegum reglubreytingum og stendur til að birta þær á vef dvalarheimilisins í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×