Hjörtur lék allan leikinn í stórsigri Bröndby Ísak Hallmundarson skrifar 9. júlí 2020 18:10 Hjörtur í hinum fallega gula Bröndby búningi. getty/Lars Ronbog
Hjörtur Hermannsson spilaði allan leikinn í vörninni hjá Bröndby þegar liðið sigraði Nordsjælland 4-0 í dönsku úrvalsdeildinni. Jón Dagur Þorsteinsson lék allan leikinn fyrir AGF í 1-0 tapi fyrir Álaborg. Simon Tibbling gaf Bröndby forystuna strax á 14. mínútu. Það var hinsvegar Mikael Uhre sem stal senunni en hann skoraði þrennu í leiknum, fyrsta mark hans kom á 19. mínútu og hann bætti síðan tveimur við á 84. og 88. mínútu. 4-0 sigur Bröndby staðreynd og eru Hjörtur og félagar nú í 4. sæti með 51 stig, sex stigum á eftir AGF í þriðja sæti þegar fjórar umferðir eru eftir. AGF tapaði einmitt fyrir liði Álaborg á sama tíma en Jón Dagur Þorsteinsson spilaði allan leikinn fyrir AGF. Lokatölur í þeim leik 1-0 þar sem Frederik Borsting gerði eina mark leiksins á 38. mínútu. Nicolai Poulsen, liðsmaður AGF, fékk að líta rauða spjaldið á 51. mínútu og AGF því manni færri í um 40 mínútur. Jón Dagur fékk gult spjald á 79. mínútu. AGF eru eins og áður segir í þriðja sætinu, sex stigum á undan Bröndby, en þriðja sætið veitir þátttökurétt í Evrópudeildinni. Álaborg er í fimmta sæti, níu stigum á eftir AGF.
Danski boltinn Mest lesið Segir hegðun Brynjars Karls „ekkert annað en ofbeldi“ Körfubolti Ýmislegt sem kom upp á: „Kornið sem fyllti mælinn“ Körfubolti Fórnaði sér fyrir strákaliðið Sport Segja sigurmark Portúgals ólöglegt: „Stór dómaramistök“ Handbolti Bryðja töflur og spila á öðrum fæti fyrir Dag Handbolti Súrustu töpin í sögu strákanna okkar Handbolti „Fokking aumingjar“ Körfubolti Datt af hestbaki og er á batavegi: „Er rétt að skríða saman“ Körfubolti Ósammála Alfreð: „Auðvitað er þetta bakslag“ Handbolti Enn bætast við feitir bitar: „Viss um að Tindastóll hugsar þetta öðruvísi núna“ Körfubolti Fleiri fréttir Sakar Arteta um að ýta undir dómarahatur Gagnrýnir Durán: „Ekki alvöru fótboltamaður“ Cristiano Ronaldo: Minn eigin sonur sagði að Mbappé væri betri en ég Amorim um Rashford: Ef hann breytist þá mun ég nota hann Sjáðu mörkin frá sögulegu lokakvöldi Meistaradeildarinnar Segir norska sambandið hafa stuðningsmenn félaganna að fíflum Félagaskiptaglugginn: Hvaða eftirsótti framherji færir sig um set? City mun mæta Real eða Bayern í umspilinu Hákon kom að marki í stórsigri og Lille tryggði sig beint áfram Sigur á Spáni lyfti Skyttunum upp í þriðja sætið Liverpool tapaði í Hollandi hélt þó toppsætinu Man City komst í umspilið eftir allt saman Í beinni: Lokaumferðin í Meistaradeildinni Freyr sagður vilja Sævar Atla til Brann Leiðarlok hjá Gerrard og Al Ettifaq Foden skýtur á Southgate Páll sækist ekki eftir endurkjöri hjá KR Amorim og Rashford talast ekki við Allt sem þú þarft að vita fyrir lokaumferð Meistaradeildarinnar í kvöld Ein besta knattspyrnukona heims gifti sig og skipti um nafn Mikael Egill semur við Genoa en klárar tímabilið í Feneyjum Prestur sagði við Gakpo að hann myndi semja við Liverpool Man. United tók annað árið í röð efnilegan leikmann frá Arsenal Freyr óttast það versta eftir leiðindaatvik á æfingu Brann Manchester United fær grænt ljóst fyrir Wembley norðursins Dagskráin í dag: Gummi með átján bolta á lofti á lokakvöldi Tólf leikmenn Liverpool fá hvíld: „Græðum aldrei á að tapa“ Jón Daði óstöðvandi á nýjum stað Brynjólfur kláraði leik 38 dögum síðar Dani fyrstu kaup Amorim hjá Man. Utd Sjá meira