Ert þú með lausn fyrir landbúnað? Til sjávar og sveita leitar að frumkvöðlum Icelandic Startups 21. maí 2020 09:30 Ljótu kartöflurnar er eitt þeirra sprotaverkefna sem orðið hefur til í hraðlinum. Fyrirtækið framleiðir kartöfluflögur úr annars flokks hráefni sem annars yrði fargað. Viðskiptahraðallinn Til sjávar og sveita leitar að frumkvöðlum með hugmyndir um nýtingu íslenskra auðlinda og vöruþróun. Umsóknarfrestur er til 15. júní. Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar: Í fyrra var í fyrsta skipti lagt af stað með viðskiptahraðal þar sem áhersla var lögð á sjálfbærar lausnir í sjávarútvegi og landbúnaði. Tíu teymi sem voru með frábærar lausnir og hugmyndir lögðu af stað í leiðangur til þess að hraða þroskaferli sínu. Þar á meðal var fyrirtækið Íslenskur dúnn. Þau ætluðu að fullvinna íslenskan æðardún og framleiða m.a. hágæða sængur. Það er nefnilega merkileg staðreynd að þó að á Íslandi falli til um 75 prósent alls æðardúns í heiminum, þá er hann að megninu til fluttur úr landinu sem hrávara. Fólkið sem stendur á bak við Íslenskur dúnn er að breyta þessu og býr til fullunna vöru á Íslandi. Þetta er frábært dæmi um ný tækifæri í framleiðslu á Íslandi. Teymin voru annars eins ólík og þau voru mörg. Sum horfðu á tæknina bak við landbúnað og sjávarútveg á meðan önnur unnu með þann góða mat sem hér finnst í fljótandi og föstu formi. Fyrirtækið Álfur bjór notar afgangs íslenskar kartöflur í bjórgerð og Beauty by Iceland selur snyrtivörur undir nafninu Rót þar sem hráefnin hafa hingað til verið þekktust sem matvæli. Fólkið í teymunum sem tóku þátt er á öllum aldri, allstaðar af landinu en samhent í því verkefni að efla sig og sitt verkefni svo það næði sem bestum árangri. Núna leitum við að næstu 10 frumkvöðlateymum til þátttöku. Við viljum gjarnan heyra þína lausn eða hugmynd sem getur skilað okkur nýjum íslenskum vörum til neytenda eða tækni sem fleytir okkur hraðar áfram í átt að sjálfbæri nýtingu auðlinda á Íslandi. Viðskiptahraðallinn Til sjávar og sveita aðstoðar þig að hraða ferlinu sem fyrirtæki fara í gegnum frá því að hugmynd kviknar þar til viðskipti taka að blómstra. Ég hvet þig til að kynna þér málið tilsjavarogsveita.is, en umsóknarfrestur er til 15. júní. Um 40 fyrirtæki í íslenskum landbúnaði styðja hraðalinn Til sjávar og sveita í gegnum Landbúnaðarklasann auk annarra samstarfsaðila verkefnisins. Til sjávar og sveita er í umsjá Icelandic Startups, auk þess sem verkefnið nýtur aðstoðar reynsluríkra sérfræðinga sem fengnir eru að borðinu til þess að miðla úr viskubrunni sínum meðan á verkefninu stendur. Til Sjávar og sveita er uppspretta nýrra lausna og varpar ljósi á tækifæri sem felast í sjálfbærri nýtingu auðlinda. Verkefnið er í umsjón Icelandic Startups í samstarfi við Íslenska sjávarklasann. Bakhjarlar verkefnisins eru Matarauður Íslands, Matís, Nettó, Landbúnaðarklasinn og Atvinnuvegaráðuneytið. Viðskipti Nýsköpun Landbúnaður Mest lesið ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Neytendur Segir stjórnendur ætla að skilja skuldirnar eftir á Íslandi Viðskipti innlent „Hef engar upplýsingar um að eitthvað óeðlilegt hafi átt sér stað“ Viðskipti innlent 208 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Samkaup eignast 38 prósenta hlut í Kjötkompaní Viðskipti innlent Einn stofnenda Play og Leifur í framkvæmdastjórn Icelandair Viðskipti innlent Einar rýfur þögnina: Vísar kenningum um fléttu á bug Viðskipti innlent Íþróttafræðin inn á vinnustaðinn: Yfirmenn ekki lengur alvitri einhyrningurinn Atvinnulíf Eiríkur Orri til Ofar Viðskipti innlent Spá óbreyttum stýrivöxtum í næstu viku Viðskipti innlent Fleiri fréttir KLAK health býður sprotafyrirtæki í heilsutækni velkomin Hreinsun þakrenna fyrirbyggir skemmdir Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Viðskiptavinurinn alltaf í fókus Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Greiðsluáskorun BMW lækkar verð á nýjustu kynslóð sportjeppans X3 Plug-in Hybrid Gætum orðið fyrsta landið í heiminum til að snúa þróun offitu við Sjá meira
Til Sjávar og sveita er uppspretta nýrra lausna og varpar ljósi á tækifæri sem felast í sjálfbærri nýtingu auðlinda. Verkefnið er í umsjón Icelandic Startups í samstarfi við Íslenska sjávarklasann. Bakhjarlar verkefnisins eru Matarauður Íslands, Matís, Nettó, Landbúnaðarklasinn og Atvinnuvegaráðuneytið.
Viðskipti Nýsköpun Landbúnaður Mest lesið ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Neytendur Segir stjórnendur ætla að skilja skuldirnar eftir á Íslandi Viðskipti innlent „Hef engar upplýsingar um að eitthvað óeðlilegt hafi átt sér stað“ Viðskipti innlent 208 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Samkaup eignast 38 prósenta hlut í Kjötkompaní Viðskipti innlent Einn stofnenda Play og Leifur í framkvæmdastjórn Icelandair Viðskipti innlent Einar rýfur þögnina: Vísar kenningum um fléttu á bug Viðskipti innlent Íþróttafræðin inn á vinnustaðinn: Yfirmenn ekki lengur alvitri einhyrningurinn Atvinnulíf Eiríkur Orri til Ofar Viðskipti innlent Spá óbreyttum stýrivöxtum í næstu viku Viðskipti innlent Fleiri fréttir KLAK health býður sprotafyrirtæki í heilsutækni velkomin Hreinsun þakrenna fyrirbyggir skemmdir Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Viðskiptavinurinn alltaf í fókus Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Greiðsluáskorun BMW lækkar verð á nýjustu kynslóð sportjeppans X3 Plug-in Hybrid Gætum orðið fyrsta landið í heiminum til að snúa þróun offitu við Sjá meira