Yfirmaður bandaríska sjóhersins segir af sér Andri Eysteinsson skrifar 7. apríl 2020 20:02 Thomas Modly hefur nú sagt af sér embætti Getty/Chip Somodevilla
Starfandi yfirmaður bandaríska sjóhersins, Thomas Modly, hefur sent frá sér uppsagnarbréf, degi eftir að hljóðupptökur komust í dreifingu. Á upptökunum mátti heyra Modly fara ófögrum orðum um fyrrverandi skipstjóra flugmóðurskipsins USS Theodore Roosevelt. Kallaði Modly skipstjórann, Brett Crozier, heimskan fyrir framan áhöfn skipsins. CNN greinir frá. Síðasta mánudag ávarpaði Modly áhöfnina þar sem hann sagði Crozier annaðhvort „of barnalegan eða of heimskan“ til þess að vera yfirmaður skipsins. Crozier var í vikunni lækkaður í tign vegna leka bréfs sem hann sendi til yfirmanna sinna og annarra vegna fjölda Covid-19 smita um borð í flugmóðurskipinu. Sjá einnig: Ráku skipstjóra flugmóðurskips sem kallaði eftir hjálp vegna faraldursins Modly hefur beðist afsökunar á ummælum sínum. „Brett Crozier skipstjóri er hvorki barnalegur né heimskur. Crozier er bæði gáfaður og metnaðarfullur því tel ég að hann hafi sent póstinn með það að markmiði að honum yrði lekið,“ sagði í yfirlýsingu Modly. Talið er líklegt að James McPherson sem starfað hefur innan raða bandaríska hersins taki við embættinu af Modly.
Bandaríkin Mest lesið Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Innlent Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Innlent Friðarsamkomulag verði undirritað á morgun Erlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Límdu efnin á fætur sína Innlent Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Fleiri fréttir Friðarsamkomulag verði undirritað á morgun „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Samþykkt friðarsamkomulag liggi fyrir Dregur umdeildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka Facebook lá niðri Kaninn pakkar saman í Evrópu Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heimsstyrjöldin Hæstiréttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunarefni Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Aflýsir kröftugu árásunum Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Sjá meira