Pell kardináli sýknaður af ákæru um barnaníð Atli Ísleifsson skrifar 7. apríl 2020 06:36 George Pell fyrir utan dómshús í Melbourne fyrr á árinu. AP
Hæstiréttur Ástralíu hefur sýknað George Pell kardinála af ákæru um barnaníð. Dómstóllinn sneri þar með við dómi, en kardinálinn hafði áður verið dæmdur í sex ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur drengjum í Melbourne á tíunda áratugnum. Hinn 78 ára Penn hafði áður gegnt ígildi stöðu fjármálaráðherra Vatikansins og var æðsti maður kaþólsku kirkjunnar sem hafði hlotið dóm fyrir kynferðisbrot. Með dómi Hæstiréttar Ástralíu, sem var einróma, var Pell sleppt út haldi, og honum ekið í Carmelite klaustrið í Melbourne. Pell hefur haldið fram sakleysi sínu allt frá því að hann var fyrst ákærður árið 2017. Mál Pell skók kaþólsku kirkjuna þar sem hann hafði verið einn af nánustu samstarfsmönnum páfa. Pell hafði afplánað um fjögur hundruð daga af dómum, en hann var sakaður um að hafa misnotað tvo þrettán ára kórdrengi í herbergjum Dómkirkju heilags Patreks í Melbourne á þeim tíma er hann gegndi stöðu erkibiskups.
Ástralía Páfagarður Kynferðisbrot innan kaþólsku kirkjunnar Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Sjá meira