Þáttur dagsins í #höldumáfram er með Birgittu Líf, markaðsstjóra WorldClass.
Birgitta sýnir hér einfalda útiæfingu sem hentar fyrir alla. Hægt að stjórna hraðanum og breyta erfiðleikastiginu til að stýra því hversu krefjandi æfingin er.
Enginn búnaður er nauðsynlegur fyrir æfinguna, bara góða skapið og hlaupaskór.
Birgitta Líf er markaðsstjóri World Class og lifir því og hrærist í heimi heilsunnar. Birgitta er einnig einn vinsælasti áhrifavaldur landsins.
Verkefnið #höldumáfram snýr að því að hvetja fólk til að hugsa um líkamlega og andlega heilsu hvort sem það er að taka æfingu, fara í göngutúr, hugleiða eða hvað sem skiptir hvern og einn máli. En þessa dagana þarf fólk að gera það heima eða úti í náttúrunni. Sjá má fleiri æfingar hér fyrir neðan.
#höldumáfram er herferð á vegum Nocco. Í henni sýnir íþróttafólk og þjálfarar sniðugar æfingar. Einnig er fólk hvatt til að taka þátt á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #höldumáfram, sýna frá því sem það er að gera en um leið hvetja vini og aðra til að gera slíkt hið sama. Halda áfram að hugsa um sig því líkamleg og andleg heilsa hafa sjaldan skipt jafn miklu máli. Ekki bara fyrir hvern og einn heldur samfélagið í heild.