Innlent

Eldur kom upp í iðnaðar­húsi í Nes­kaup­stað

Atli Ísleifsson skrifar
Greiðlega gekk að slökkva eldinn en slökkvistarfi var lokið upp úr klukkan sex í morgun.
Greiðlega gekk að slökkva eldinn en slökkvistarfi var lokið upp úr klukkan sex í morgun. Slökkvilið Fjarðabyggðar

Eldur kom upp í þaki rafstöðvarhúss RARIK í Neskaupstað í nótt. Tilkynnt var um eldinn klukkan 4:10, en byggingin hýsir starfsemi RARIK í bænum, meðal annars varaaflvélar, háspennubúnað og spennu. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en slökkvistarfi var lokið upp úr klukkan sex í morgun.

Slökkvilið Fjarðabyggðar segir frá málinu á Facebook-síðu sinni, en vegna tengivinnu í aðveitustöð var bærinn fæddur á varaafli og voru því allar vélar í gangi í stöðinni þegar eldurinn kom upp.

„Þegar að var komið logaði eldur upp úr þaki byggingarinnar í afmörkuðu rými umhverfis reykrör frá varaaflvélum stöðvarinnar. Brunaskil virkuðu og komst eldurinn ekki í aðra hluta byggingarinnar.

Á meðan undirbúið var að koma mönnum upp á þak hússins við erfiðar aðstæður, var slökkvibyssa (monitor) á nýjum öflugum slökkvibíl slökkviliðsins notaður til að slökkva sýnilegan eld og til að verja aðra hluta þaksins. Bíllinn er með mjög öflugt CAFFS froðukerfi með mikinn slökkvimátt. Þannig tókst að halda eldinum í skefjum og koma í veg fyrir að hann breiddist út á aðalþak byggingarinnar. Þegar reykkafarar við erfiðar aðstæður komust að þakvirkinu, voru rofin göt á klæðningar til að komast að upptökum og slökkva glóð.

Slökkvistarfið gekk greiðlega en auk slökkviliðsmanna frá slökkvistöð Slökkviliðs Fjarðabyggðar í Neskaupstað kom aðstoð frá næstu slökkvistöð þess á Reyðarfirði.Slökkvilið Fjarðabyggðar

Fengin var aðstoð verktaka við að moka snjó frá húsinu til að koma körfubíl að og einnig tæki til að sanda vettvang þar sem var nokkur snjór og hálka.

Slökkvistarfið gekk greiðlega en auk slökkviliðsmanna frá slökkvistöð Slökkviliðs Fjarðabyggðar í Neskaupstað kom aðstoð frá næstu slökkvistöð þess á Reyðarfirði. Um klukkustund tók að slökkva allan eld og drepa í glæðum en slökkvistarfi á vettvangi lauk rúmlega sex í morgun.

Þar sem allt rafmagn fór af bænum við þetta þá unnu slökkviliðsmenn þarna í svarta myrkri, í snjó og hálku og aðstæður á þaki á hárri byggingu sem voru mjög varhugaverðar og erfiðar. Veður var hins vegar stillt og hjálpaði það mikið til,“ segir í færslunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×