Leikhléið sem breytti einvíginu: „Örugglega það besta sem ég hef tekið á ævinni“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. desember 2019 22:30 Patrekur gerði Selfoss að Íslandsmeisturum á síðasta tímabili. vísir/daníel
Leikhléið sem Patrekur Jóhannesson tók þegar Selfoss var fimm mörkum undir, 26-21, í þriðja leiknum gegn Haukum í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil karla breytti gangi mála, ekki bara í leiknum heldur í öllu einvíginu. Leikhléið var til umræðu í annál um handboltaárið 2019 sem var sýndur á Stöð 2 Sport í gær. „Það var alveg lygilegt og Patti fær hrós hvernig hann tæklaði það. Hann vissi nákvæmlega á hvaða hnappa hann átti að ýta á. Hann gerði þetta einstaklega vel og það var magnað hvernig þetta kveikti í þeim,“ sagði Sigursteinn Arndal, í annálnum en hann lýsti þriðja leik Selfoss og Hauka ásamt Arnari Björnssyni. Selfoss skoraði fimm mörk í röð og jafnaði í 26-26. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 27-27 og Selfyssingar unnu svo eftir framlengingu, 30-32. Þeir skoruðu ellefu af síðustu 15 mörkum leiksins. „Þetta er örugglega besta leikhlé sem ég hef tekið á ævinni,“ sagði Patrekur. Selfoss tryggði sér svo sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil með stórsigri í fjórða leiknum á heimavelli, 35-25. Allir fjórir annálarnir verða sýndir á Stöð 2 Sport á morgun, gamlársdag. Dagskrána má sjá með því að smella hér. Innslagið má sjá hér fyrir neðan. Klippa: Leikhléið sem breytti gangi mála
Olís-deild karla Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Frakkland - Spánn | Sæti í úrslitaleiknum undir Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira