Enski boltinn

Alderweireld framlengdi við Tottenham

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Aldreweireld í leik með Spurs.
Aldreweireld í leik með Spurs. vísir/getty

Belgíski landsliðsmaðurinn Toby Alderweireld fer kátur inn í jólin eftir að hafa skrifað undir nýjan samning við Tottenham í dag.

Nýi samningurinn er til ársins 2023. Mikið hefur verið rætt um framtíðarmál varnarmannsins enda átti gamli samningurinn að renna út næsta sumar.

Fjöldi liða hafði áhuga á þessum þrítuga leikmanni en hann kaus að vera áfram þar sem honum líður vel.

„Ég er mjög hamingjumsamur hérna. Ég get ekki einu sinni lýst því með orðum hversu kátur ég er að vera hér áfram,“ sagði Belginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×