Togari Úthafsskipa grunaður um veiðar í leyfisleysi Kristín Ólafsdóttir skrifar 17. desember 2019 19:02 Dakar er höfuðborg Senegal. Vísir/getty
Verksmiðjutogarinn Navigator var aðfaranótt mánudags færður til hafnar í Dakar, höfuðborg Senegals, vegna gruns um að hann hefði verið á veiðum undan ströndum landsins án leyfis. RÚV greinir frá. Útgerðarfélagið Úthagsskip gerir togarann út og skipstjóri hans er íslenskur. Senegalski sjóherinn staðfestir við RÚV að hafa fært Navigator til hafnar í Dakar, þar sem togarinn er enn við höfn. Þá segir í frétt RÚV að hald hafi verið lagt á vegabréf skipstjórans en hann hafi þó ekki verið handtekinn. Flestir í sjötíu manna áhöfn togarans eru frá Máritaníu. Haraldur Reynir Jónsson eigandi Úthafsskipa segir í samtali við Mbl að togarinn hafi ekki veitt án leyfis í landhelgi Senegals. Togarinn hafi verið að veiða í landhelgi Máritaníu þegar senegalski sjóherinn kom að honum og taldi hann vera í senegalskri landhelgi. Hafi skipið verið í landhelgi Senegal gæti útgerðarfélagið fengið sekt, að sögn Haraldar. Togarinn Heineste sem er í eigu Esju Holding, félags sem íslenska sjávarútvegsfyrirtækið Samherji á stóran hlut í, var kyrrsettur í Namibíu í nóvember. Íslenskur skipstjóri skipsins var handtekinn en sleppt úr haldi skömmu síðar.
Senegal Sjávarútvegur Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Sjá meira