Alþjóðlegur vinnuhópur um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, Financial Action Task Force (FATF) hefur beint 40 tilmælum til íslenskra stjórnvalda um þætti sem þarf að bregðast við. Í byrjun september höfðu íslensk stjórnvöld uppfyllt tuttugu og átta af fjörutíu tilmælum vinnuhópsins og ellefu tilmæli voru uppfyllt að hluta.
Síðan þá Alþingi afgreitt tvö lagafrumvörp annars vegar sem snýr að skráningu almannaheillasamtaka sem starfa þvert á landamæri og hins vegar lagafrumvarp sem snýr að hvernig eigi að meðhöndla muni og eignir sem hafa verið haldlagðar eða kyrrsettar.

Tollgæslan bregst við og eflir varnir við landamæri
Tollgæslan hefur eflt varnir sínar af þessum sökum við landamæri Íslands og hefur leitarhundur verið sérstaklega þjálfaður til þess að finna peninga.„Okkar viðbrögð eru þau að við er að bæta þessu í lyktarflóru hundanna, peningalykt sem sagt. Við fáum svokallað "peningaskrats" frá Seðlabankanum sem við æfum hundanna á. Byrjunin lofar góðu. Hundurinn er mjög fljótur að merkja þetta og þetta er greinilega eitthvað sem á eftir að virka,“ segir Ársæll Ársælsson, yfirtollvörður hjá Tollgæslunni.

Talið að meira sé sé farið út með reiðufé en upplýsingar eru um
Tollgæslan hefur upplýsingar um að hér á landi sem og hjá nágrannaþjóðum sé mikið um það að fólk ferðist með peningaseðla í ferðatöskum eða bakpokum á milli landa.„Stundum er þetta löglegt fé og ekkert við því að segja en stundum er þetta illa fengið fé, peningaþvætti eða fjármögnun hryðjuverka og þá er þetta eitthvað sem gert er upptækt af yfirvöldum,“ segir Ársæll.
Ársæll segir fólk ekki almennt ekki með það á hreinu hversu mikið fé sé heimilt að koma með, eða fara með úr landi. Sú upphæð er 10.000 evrur eða tæplega fjórtán hundruð þúsund krónum. Sé upphæðin hærri þarf að upplýsa tollgæsluna um það með sérstakri umsókn.
Það sem af er þessu ári hafa aðeins sex aðilar tilkynnt um flutning fjármagns yfir þessari upphæð. Allt árið í fyrra voru þeir átta og árið 2017 sextán. Ársæll segir þetta lágt hlutfall.
„Ef við skoðum tölur frá nágrannalöndunum ætti að vera meira á ferðinni á milli landa þannig að það verður fróðlegt að vita hvernig árangur okkar verður,“ segir Ársæll.