Skoðun

Takk Bryndís

Anna Claessen skrifar
„Hugsaðu um af hverju þú ert að gera það sem þú gerir” - Bryndís Líf

Ég lenti í skammarkróknum.

Hefði ég ekki átt að nafngreina?

Klárlega.

Fannst hún og greinin hennar svo flott og viðmótið áhugavert að þess vegna notaði ég hana sem dæmi. My bad!

Ég las greinina út frá DV og var í sjokki. 

Var ég vondi kallinn? 

Lagði ég í einelti?

Ég sem var lögð í einelti og vil alltaf hafa alla með og byggja aðra upp ... ekki brjóta niður.

Ég sem starfa við danskennslu, sem skemmtikraftur og markþjálfun, starfa við að gleðja fólk.

Ég sem er í Dale Carnegie að segja öðrum: „Ekki fordæma.”

Braut ég á einhverjum?

Áts!

Hvað gerir maður þá? 

Þegar maður hefur gert eitthvað rangt?

Anna Claessen biður Bryndísi Líf afsökunar.
Biðjast fyrirgefningar.

✔️Sendi strax skeyti.

Og biðst hér með fyrirgefningar.

Ætlaði aldrei að særa neinn.

Þetta voru í raun mínar pælingar!

„Líður þeim vel sem fá ekki jafn mörg læk og vinir sínir? Jafn mörg læk og samfélagsmiðlastjörnurnar sem sýna allan sinn líkama? Hvernig myndi þér ef litla systir eða frænka myndi deila svona efni af líkama þeirra?”

Í staðinn notaði ég íslenska fallega konu sem dæmi og var tekin fyrir það. 

Skiljanlega!

Þetta var ekki fallega gert og ég er miður mín.

Bryndís á hrós skilið hvernig hún tók þessu.

Takk Bryndís fyrir að sýna mér mína fordóma.

Ég er hrædd. Hrædd um litlu frænkur mínar sjái svona, bera það saman við þeirra líkama, fari að hata hann eða fari í hina áttina og fækki fötum til þess að fleiri like. Meiri ást og stuðning. Það er hræðslan, og þannig urðu til fordómarnir.

Hvað lærði ég á þessu?

Ekki dæma!

Sjáðu frekar hvað þessi hegðun er í raun og veru að segja þér um þig og þína hræðslu og farðu að vinna í því.

Takk Bryndís.


Tengdar fréttir

Bryndís segir nekt ákveðið frelsi: „Læk láta öllum líða vel“

Samfélagsmiðlastjarnan og sálfræðineminn Bryndís Líf hefur vakið mikla athygli fyrir myndir sem hún birti af sjálfri sér á samfélagsmiðlinum Instagram en Bryndís hefur ögrað stjórnendum miðlanna með myndum af sér þar sem hún sýnir brjóstin á sér, allt nema geirvörturnar.

Like-sýki

"Læk láta öllum líða vel,” - Bryndís Líf samfélagsmiðlastjarna. Er það? Líður þeim vel sem fá ekki jafn mörg læk og vinir sínir?




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×